Hátíðir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Vestmannaeyjar hafa sætt verulegri einangrun í gegnum aldirnar, en Eyjamenn hafa ekki látið það eftir sér að sitja aðgerðalausir meðan aðrir skemmta sér - hátíðir og uppákomur af öllum stærðargráðum eru á hverju strái þegar Vestmannaeyjar eru annarsvegar, og mikið er að gerast í Eyjum allt árið um kring. Vinsælt er meðal ferðamanna að sækja Eyjarnar heim þegar sérstakir viðburðir bjóðast, en nokkrir þeirra bera af í vinsældum:

Þjóðhátíð í Eyjum

Sjá aðalgrein:Þjóðhátíð

Þjóðhátíðin er allajafna haldin fyrstu helgi í ágúst. Hátíðin er af gömlum grunni eða frá því árið 1874 þegar Íslendingar fjölmenntu á Þingvöll í tilefni þúsund ára byggðar á Íslandi. Sökum veðurs var ógjörningur fyrir Eyjamenn að sækja hátíðina, svo að þeir komu sér upp sinni eigin hátíð.

Í dag er Þjóðhátíðin í Eyjum stór og mikill viðburður þar sem ÍBV íþróttafélag byggir upp ævintýralega smáborg í Herjólfsdal. Sú borg hverfur svo nánast sporlaust fjórum dögum síðar. Þar er boðið upp á tónlistarveislu þar sem vinsælustu hljómsveitir landsins hverju sinni stíga á stokk og gleðja hátíðargesti allan sólarhringinn. Flugeldasýning, brenna á Fjósakletti og brekkusöngur er meðal þess sem boðið er upp á. Hin sérstæðu hvítu hústjöld setja líka sterkan svip sinn á dalinn þar sem heimamenn setja upp tjöld sín á skipulagðan hátt og hver röð tjalda myndar götu og hvert tjald hefur númer eða nafn. Þarna hafast menn við hvernig sem viðrar og næra sig á lunda og kjötsúpu. Þar er oft á tíðum dvalið fram í dagrenningu við gítarspil og söng.

Sjómannadagurinn

Sjá aðalgrein:Sjómannadagurinn

Sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum hefur verið haldinn hátíðlegur frá 1940. Hann er haldinn fyrstu helgina í júní ár hvert, hátíðahöld standa yfir í tvo daga, laugardag og sunnudag. Á síðustu árum hefur föstudeginum einnig verið bætt við þar sem haldið hefur verið sjómannagolfmót, knattspyrna og söngkvöld með Árna Johnsen.

Á laugardeginum fara hátíðahöld aðallega fram við Friðarhöfn þar sem bryggjur og skip eru fánum skreytt, þar er m.a. kappróður, koddaslagur, reiptog, spretthlaup og margt fleira. Þá er fastur liður á þessum degi skákmót milli sjómanna og landkrabba. Að kvöldi er svo hátíðarsamkoma með fjölbreyttum skemmtiatriðum, og ekki má gleyma dansleiknum þar sem dansað er fram undir morgun. Á sunnudeginum sem er hinn eiginlegi Sjómannadagur er bærinn allur fánum skreyttur, dagskrá hans hefst ávallt með sjómannamessu í Landakirkju, strax eftir messu er minningarathöfn í umsjá Snorra Óskarssonar um hrapaða og drukknaða. Hátíðardagskrá er svo á Stakkagerðistúni þar sem Lúðrasveit Vestmannaeyja hefur ávallt spilað, hátíðarræða dagsins flutt, sjómenn heiðraðir, verðlaunaafhendingar, og ekki hvað síst hefur verið góð barnadagskrá.

Um kvöldið er kvöldskemmtun í Höllinni með vandaðri dagskrá og hátíðarmatseðli Hallarinnar sem settur er upp sérstaklega fyrir gesti sjómannadagsins.

Í tilefni dagsins er gefið út veglegt Sjómannadagsblað Vestmannaeyja og hefur það komið út á hverju ári síðan 1947 ef undan er skilið gosárið 1973.

Goslokahátíðin

Goslokahátíðin í Skvísusundi.

Sjá aðalgrein:Goslokahátíðin

Goslokahátíðin er haldin hátíðleg fyrstu helgina í júlí. Þá er goslokanna á Heimaey minnst með ýmsum hætti, svo sem harmonikkuleik og öðru skralli í krónum í Skvísusundi. Þessi hátíð er minni í sniðum en Þjóðhátíðin, en mun nánari og fjölskylduvænni. Gamlir Eyjamenn snúa aftur frá meginlandinu til þess að endurnýja gömul kynni, og viðstöðulausri dagskrá er haldið uppi víða um bæinn með málverkasýningum, leikrænum tilburðum og öðrum listrænum gjörningum.

Íþróttaviðburðir

Shellmót og Vöruvalsmót

Peyja- og pæjumót í knattspyrnu eru haldin í júní þar sem yngri flokkar af öllu landinu hittast og keppa í fótbolta á Hásteinsvelli, Þórsvelli og Týsvelli. Mótin standa yfir í þrjá til fjóra daga og börnin fá einnig tækifæri til að upplifa margt það sem Eyjarnar hafa upp á bjóða, til dæmis spranga og fara í siglingu umhverfis Eyjuna og sjá svartfuglinn í berginu. Setningarhátíð peyjamótsins hefur öðlast mikilvægan sess í hjörtum gestanna sem þar koma, enda þar nóg af skemmtilegum föstum liðum.

Golfævintýri

Golfævintýri er spennandi golfmót og golfkennsla fyrir börn og unglinga. Ævintýrið stendur í fimm daga og er öllum krökkum opið.

Volcano open

Volcano open er stórt golfmót sem haldið er í byrjun júlí og er opið öllum - stundum hefur þetta golfmót runnið saman við goslokahátíðina með góðum árangri. Gjarnan er mjög fjölmennt á Volcano open, enda er fátt betra að gera á björtum degi í júlí en að spila golf langt fram eftir nóttu.

Pysjuævintýri

Pysjuævintýrið hefst upp úr miðjum ágúst. Lundapysjan flýgur í átt að ljósunum í bænum, lendir þar á götum og milli húsa og finnur sér enga leið til bjargar, — sagt er að lundinn geti ekki flogið nema hann sjái til sjávar.

Þá hefst hið mikla og skemmtilega ævintýri barna og fullorðinna að bjarga pysjunum frá siðmenningu mannfólksins. Börn og fullorðnir fara um bæinn seint á kvöldin með vasaljós og kassa undir hendinni í von um að finna pysjur. Næsta dag er pysjunum sleppt í fjörunni þar sem hún syndir út og kafar eftir æti. Þar með hefur pysjunum verið bjargað.

Lundaball

Lundaballið er haldið að hausti ár hvert, en þá mætast lundaveiðimenn allra eyjanna og halda saman uppskeruhátíð. Félögin um hverja úteyju eða veiðistað skiptast á að halda ballið og er mikill metnaður lagður í að toppa ballið frá árinu áður. Á Lundaböllum er boðið upp á lunda með allskyns matreiðsluaðferðum en einnig er boðið upp á annarskonar villibráð. Lundaböll voru hér áður fyrr einungis fyrir lundaveiðimenn og þeirra frúr en hafa á síðari árum verið opin öllum.

Þrettándinn

Sjá einnig: Áramót

Þrettándinn er haldinn hátíðlegur og m.a. gengið upp Illugagötu.

Þrettándi og síðasti dagur jóla er haldinn hátíðlegur í Vestmannaeyjum. Þrettándaganga er farin um bæinn í fylgd Grýlu, Leppalúða, jólasveinanna og ýmissa skelfilegra trölla, en samkvæmt hefðinni hefst hún nálægt Skiphellum þar sem jólasveinarnir koma niður af Hánni. Gangan heldur þaðan upp á stóra malarvöllinn í Löngulág. Þar er dansað í kringum brennu með álfum, púkum og allskyns kynjaverum. Að lokum eru jólin kvödd um miðnætti með flugeldasýningu.