Byggðasafn Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Merki Byggðasafns Vestmannaeyja

Byggðasafn Vestmannaeyja var stofnað árið 1932. Frumkvöðull að stofnun safnsins og driffjöður í áratugi var Þorsteinn Þ. Víglundsson, en hann sá hættuna á því að menningarverðmæti færu forgörðum ef ekki yrði hafist handa við söfnun þeirra. Fyrstu árin var munum komið fyrir í geymslu á heimili hans, en síðar fékk safnið inni á háalofti nýbyggingar Gagnfræðaskólans, og árið 1964 var safnið opnað almenningi á 3. hæð Sparisjóðsins. Árið 1978 var safnið opnað á ný eftir gosið og þá í Safnahúsinu.


Byggðasafn á eldstöðvum Þann 27. janúar 1973 lagði sex manna hópur undir stjórn Þorsteins Þ. Víglundssonar af stað til Eyja frá Þorlákshöfn með Gullbergi VE. Markmiðið var að bjarga menningarverðmætum Eyjanna frá nýhöfnu gosinu og koma mununum úr Byggðasafninu í örugga geymslu á fastalandinu. Í hópnum voru m.a. synir Þorsteins og fleiri skyldmenni.
Unnið var sleitulaust að því að búa muni Byggðasafnsins undir flutninginn dagana 28. og 29. janúar.
Mununum var komið fyrir í fjórum gámum og voru þeir fluttir með Dettifossi til Reykjavíkur.
Í Reykjavík tók á móti þeim Þór Magnússon, þjóðminjavörður, sem ásamt sínu fólki kom mununum fyrir í geymslum Þjóðminjasafnsins. Alls tók þessi ferð tæpa fjóra sólarhringa.

Orðsending frá Byggðasafninu í Bliki 1967.

Byggðasafnið á kvikmynd

Í þessum kafla er sýnd kvikmynd, sem tekin var í safninu 14. maí 1981.
Þorsteinn Þ. Víglundsson, þá nær 82 ára gamall, gekk þá um safnið með tengdasyni sínum Sigfúsi J. Johnsen, lýsti því sem bar fyrir augu, en Sigfús festi á vídeó-filmu.
Úr filmunni hefur verið unnin kvikmynd, sem hér birtist með hjálp Youtube-kerfisins.
Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir kona Sigfúsar hefur látið vinna þetta verk og gefið Byggðasafninu.
Myndin skiptist í 22 flokka eftir efni, en tveim flokkum er skipt í tvennt vegna lengdar og tækni Youtube-kerfisins.
Við flokkana er tengt ítarefni fyrir þá, sem vilja heyja sér frekari þekkingu á efninu.
Að lokum er annað ítarefni, sem tengist Byggðasafninu og finna má á Heimaslóð.


Fyrsti gripurinn


Kaflinn Fyrsti gripurinn fjallar um:

  • Tilurð Byggðasafnsins
  • Púðurhornið

Undirstaðan


Kaflinn Undirstaðan fjallar um:

  • Skeljar og kuðunga
  • 70-80 fiskategundir


Ítarefni:

Byggðin - fyrri hluti


Kaflinn Byggðin - fyrri hluti fjallar um:

  • Nöjsomhed
  • Byggðina, málverk

Byggðin - seinni hluti


Kaflinn Byggðin - seinni hluti fjallar um:

  • Þorpið
  • Frydendal
  • Nýborg o.fl.
  • Ströndina við Höfnina, málverk


Ítarefni:

Skansinn og Verslunin - fyrri hluti


Kaflinn Skansinn og Verslunin - fyrri hluti fjallar um:

  • Strandið á Básaskerjum 1711
  • Kjöl og krikkju
  • Johan Peter Torkelin Bryde, málverk


Ítarefni:

Skansinn og Verslunin - seinni hluti


Kaflinn Skansinn og Verslunin - seinni hluti fjallar um:

  • Virkið og Verslunina


Ítarefni:

Bátalag og bátasmíðar


Kaflinn Bátalag og bátasmíðar fjallar um:

  • Vestmannaeyjalagið, líkan
  • Teinæringinn Ísak, líkan
  • Bát með færeyska laginu, líkan
  • Eina elstu gerð vélbáta, líkan
  • Vélbátinn Sigríði, málverk
  • Hrönn frá Ísafirði, líkan
  • Nútíma netabát, líkan
  • „Stafnbúa“
  • Kúbeinið


Ítarefni:

Veiðarfæri


Kaflinn Veiðarfæri fjallar um:

  • Veiðarfæri til hákarlaveiða
  • Veiðarfæri ýmisleg: Sökkur, seilar, dorg
  • Teinasökkur
  • Vaðbeygjur, ræði
  • Sökku (ÞJ)
  • Hnísu- og hrefnuskutla


Ítarefni:

3 veiðarfæralíkön


3 veiðarfæralíkön

Önnur verkfæri til sjósóknar og veiða


Kaflinn Önnur verkfæri til sjósóknar og veiða fjallar um:

  • Ræði
  • Línurúllur ofl.
  • Línubelgi
  • Línustokktré
  • Netasteina
  • Taumarokka
  • Krókahnýtingatæki

Sigling og öryggi


Kaflinn Sigling og öryggi fjallar um:

  • Lýsissíla
  • Siglinga- og lagningaljós
  • Skipsbjöllu
  • Austurtrog (Labbi)
  • Austursleifar


Ítarefni:

ÞÓR


Kaflinn ÞÓR fjallar um:

  • Nafnmerkið, líkan, sögu
  • Hlutabréf
  • Skipsbjölluna
  • Skothylkið


Ítarefni:

Þægindi til sjós


Kaflinn Þægindi til sjós fjallar um:

  • Eldavél (kabissa)
  • Vatnshitakatla
  • Bitakassa
  • Sjóklæði
  • Vatns-og sýrukúta


Ítarefni:

Sjó og landsetning


Kaflinn Sjó- og landsetning fjallar um:

  • Hlunna úr hvalbeini
  • Hlunna
  • Sleða („hlunna“)
  • Blökk
  • Legubólin í Höfninni


Ítarefni:

Fiskvinnsla


Kaflinn Fiskvinnsla fjallar um:

  • Fiskigarðana, líkan
  • Pallana, málverk
  • Við Strandveginn um lágnættið, málverk
  • Saltfiskverkun í króarsundi, málverk
  • Króaskrár


Ítarefni:

Landbúnaður


Kaflinn Landbúnaður fjallar um:

  • Vinnslu mjólkur
  • Ullarvinnslu
  • Reislur


Ítarefni:

Fjárréttin á Eiðinu


Kaflinn Fjárréttin á Eiðinu.

Ítarefni:

Fuglanytjar


Kaflinn Fuglanytjar fjallar um:

  • Grefla
  • Háfa
  • Keppi o.fl.
  • Egg
  • Eggjatekju


Ítarefni:

Kirkjan


Kaflinn Kirkjan fjallar um:

  • Landakirkju 1847, málverk
  • Landakirkju með turni
  • Landakirkju með stöpli
  • Rambaldið, pálinn og rekuna


Ítarefni:

Vopn o.fl.


Kaflinn Vopn o.fl. fjallar um:

  • Tyrkjabyssuna
  • Herfylkinguna
  • Vélbyssu Binna í Gröf
  • Grænlandsför Gottu
  • Sauðnautshausinn


Ítarefni:

Blöð og tímarit


Blöð og tímarit

Ítarefni:

Ýmislegt


Kaflinn Ýmislegt fjallar um:

  • Vatnsdælur
  • Þjóðhátíðarlúðra
  • Íslendinginn og langspilið

Annað ítarefni, sem tengist Byggðasafninu og finna má á Heimaslóð.

Blik 1959/Byggðarsafnsnefnd Vestmannaeyja 1959
Blik 1965/Söfnin í Eyjum, I. hluti
Blik 1965/Söfnin í Eyjum, II. hluti
Blik 1965/Söfnin í Eyjum, III. hluti
Blik 1967/Tyrkneski Hnappurinn
Blik 1967/Byggðarsafn Vestmannaeyja
Blik 1967/Gjafir til safnanna í Eyjum
Blik 1961/Myndir úr Byggðarsafni
Blik 1972/Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja, 1. kafli
Blik 1973/Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja, framhald, I. hluti.
Þar í beinu framhaldi II., III., IV. og V. hluti.
Blik 1973/„Aldrei líður mér úr minni ...“
Blik 1973/Byggðarsafninu bjargað
Blik 1976/Byggðarsafninu færðar góðar gjafir
Blik 1976/Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja, þar sem getið er um 320 Vestmannaeyinga. Þetta er framhald frá 1973, 5. hlutar, hver á eftir öðrum.
Blik 1978/Minjaskrá Byggðarsafns Vestmannaeyja, framhald, I. hluti.
Þetta er framhald frá 1976, 6 hlutar, hver á eftir öðrum.
Blik 1978/Safnahúsið í Vestmannaeyjum
Blik 1978/Bréf til bæjarstjórnar Vestmannaeyja
Blik 1978/Vígsla Byggðarsafnsins
Blik 1978/Liðin tíð kveður framtíð og bæjarstjórn færðar þakkir



Heimildir