Sjómannadagurinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sjómannadagurinn í Vestmannaeyjum hefur verið haldinn hátíðlegur frá 1940. Hann er haldinn fyrstu helgina í júní ár hvert, hátíðahöld standa yfir í tvo daga, laugardag og sunnudag. Á síðustu árum hefur föstudeginum einnig verið bætt við þar sem haldið hefur verið sjómannagolfmót, knattspyrna og söngkvöld með Árna Johnsen.

Kappróður árið 1933, á miðri mynd er hafnarbáturinn Brimill

Á laugardeginum fara hátíðahöld aðallega fram við Friðarhöfn þar sem bryggjur og skip eru fánum skreytt, þar er m.a. kappróður, koddaslagur, reiptog, spretthlaup og margt fleira. Þá er fastur liður á þessum degi skákmót milli sjómanna og landkrabba. Að kvöldi er svo hátíðarsamkoma með fjölbreyttum skemmtiatriðum, og ekki má gleyma dansleiknum þar sem dansað er fram undir morgun. Á sunnudeginum sem er hinn eiginlegi Sjómannadagur er bærinn allur fánum skreyttur, dagskrá hans hefst ávallt með sjómannamessu í Landakirkju, strax eftir messu er minningarathöfn í umsjá Snorra Óskarssonar um hrapaða og drukknaða. Hátíðardagskrá er svo á Stakkagerðistúni þar sem Lúðrasveit Vestmannaeyja hefur ávallt spilað, hátíðarræða dagsins flutt, sjómenn heiðraðir, verðlaunaafhendingar, og ekki hvað síst hefur verið góð barnadagskrá.

Um kvöldið er kvöldskemmtun í Höllinni með vandaðri dagskrá og hátíðarmatseðli Hallarinnar sem settur er upp sérstaklega fyrir gesti sjómannadagsins.

Í tilefni dagsins er gefið út veglegt Sjómannadagsblað Vestmannaeyja og hefur það komið út á hverju ári síðan 1947 ef undan er skilið gosárið 1973.