Hafliði Guðjónsson (Skaftafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Hafliði Guðjónsson frá Skaftafelli, verkamaður, skrifstofumaður fæddist þar 21. apríl 1936.
Foreldrar hans voru Guðjón Hafliðason frá Fjósum í Mýrdal, bátsformaður, útgerðarmaður á Skaftafelli, f. 8. júní 1889, d. 13. júlí 1963, og kona hans Halldóra Kristín Þórólfsdóttir frá Hólmaseli í Flóa, Árn., húsfreyja, f. 10. júlí 1893, d. 10. janúar 1985.

Börn Halldóru Kristínar og Guðjóns:
1. Ingólfur Guðjónsson í Lukku, verkamaður, hænsna- og garðyrkjubóndi, f. 15. júlí 1913 á Brekku, d. 23. janúar 1999. Kona hans Jóhanna Hjartardóttir.
2. Trausti Guðjónsson húsasmíðameistari, 13. ágúst 1915 á Eyjarhólum, d. 2. desember 2008. Kona hans var Ragnheiður Jónsdóttir.
3. Guðbjörg Guðjónsdóttir húsfreyja, trúboði, f. 26. des. 1916, d. 14. sept. 2007. Maður hennar Jónas S. Jakobsson.
4. Auður Guðjónsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, ræstitæknir, f. 7. apríl 1918, d. 30. maí 2001. Maður hennar Höskuldur Árnason.
5. Haraldur Guðjónsson verslunarmaður, verkstjóri, forstöðumaður, f. 12. des. 1920, d. 23. nóv. 1993. Fyrri kona hans var Pálína Kristjana Guðleif Pálsdóttir. Síðari kona Hertha Haag, sænskrar ættar.
6. Rebekka Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 23. mars 1923, d. 21. jan. 1944. Maður hennar var Gunnar Davíðsson.
7. Elísabet Guðjónsdóttir Cortes hjúkrunarfræðingur, f. 5. mars 1926, d. 1. september 2015. Maður hennar var Thor Emanuel Cortes, látinn.
8. Óskar Guðjónsson trésmiður, f. 25. desember 1927. Kona hans Anna Jónsdóttir.
9. Anna Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 10. nóv. 1929, d. 23. ágúst 2011. Maður hennar Garðar Lárus Ragnarsson.
10. Ester Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 4. apríl 1934, d. 2. desember 2012. Maður hennar Benedikt Frímannsson.
11. Hafliði Guðjónsson verkamaður, skrifstofumaður, f. 21. apríl 1936. Kona hans er Gyða Þórarinsdóttir.

ctr


Börnin á Skaftafelli.

Hafliði var með foreldrum sínum í æsku, vann verkamannsstörf í Eyjum. Þau Gyða fluttu til Reykjavíkur 1959, keyptu jörðina Stórholt í Saurbæ í Dalas. með Ester Guðjónsdóttur og Benedikt Frímannssyni 1970, fluttu nokkru síðar þangað, en Hafliði vann hjá kaupfélaginu þar til 1978, er þau fluttu til Reykjavíkur. Hann vann lengst hjá Skrifstofuvélum, en síðari árin var hann umsjónarmaður í Hvassaleitisskóla.
Þau Gyða giftu sig 1956, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu að Hásteinsvegi 51 í Eyjum, en m.a. í Nóatúni 25 og nú að Suðurlandsbraut 68a í Reykjavík.

Kona Hafliða, (30. júní 1956), er Gyða Þórarinsdóttir frá Stóra-Hrauni í Kolbeinsstaðahreppi í Hnapp., f. 28. apríl 1935 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Guðjón Hafliðason grafískur hönnuður, áður í Bandaríkjunum, síðan í Reykjavík, f. 17. ágúst 1958 í Eyjum. Kona hans er Líney Kristinsdóttir.
2. Ómar Hafliðason, f. 3. maí 1964, atvinnukafari, vinnur nú hjá Sjótækni. Fyrrum konur Signý Guðbjartsdóttir og Elísabet Ólafsdóttir.
3. Arnbjörg Hafliðadóttir förðunarfræðingur, kvikmyndaframleiðandi, f. 18. apríl 1972, ógift.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.