Vilborg Jónsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. desember 2014 kl. 17:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. desember 2014 kl. 17:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Vilborg Jónsdóttir''' húsfreyja á Kirkjubæ og í Hólshúsi fæddist 28. febrúar 1855 á Ketilsstöðum í Mýrdal.<br> Foreldrar hennar voru Jón Þorkels...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Vilborg Jónsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ og í Hólshúsi fæddist 28. febrúar 1855 á Ketilsstöðum í Mýrdal.
Foreldrar hennar voru Jón Þorkelsson bóndi á Ketisstöðum og víðar í Mýrdal, f. 1. mars 1830, drukknaði í Dýrhólahöfn 20. mars 1871, og kona hans Ingiríður Einarsdóttir húsfreyja, síðar í Norðurgarði f. 2. nóvember 1832, d. 18. janúar 1813.

Systkini Vilborgar í Eyjum voru:
1. Einar Jónsson bóndi og sjómaður í Norðurgarði, f. 12. júní 1859, d. 8. ágúst 1937, kvæntur Árnýju Einarsdóttur.
2. Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 27. mars 1862, d. 14. janúar 1939, kona Arngríms Sveinbjörnssonar.
3. Bjarni Jónsson í Norðurgarði, bóndi og málari í Utah, f. 19. apríl 1863.
4. Salgerður Jónsdóttir vinnukona á Kirkjubæ og í Hólshúsi f. 28. desember 1869 á Litlu-Hólum í Mýrdal.

Vilborg var með foreldrum sínum til 1871, var síðan á Hóli 1871-1872.
Hún fluttist til Eyja úr Mýrdal 1872 og var vinnukona í Jónshúsi til 1880.
Hún var vinnukona í Stakkagerði í lok árs 1880 með son sinn Helga Guðjón á fyrsta ári.
Hún var ógift bústýra hjá Jóni Jónssyni á Kirkjubæ 1881 og þar var barn þeirra Helgi Guðjón eins árs, var þar 1882, en Helgi Guðjón dó á árinu í mislingafaraldri.
1883 voru þau Vilborg hjón á Kirkjubæ og vinnumaður hjá þeim var Bjarni Jónsson bróðir Jóns.
1884 voru þau þar enn og Guðbjörg Jónína var mætt, á fyrsta ári.
Þau voru húsfólk í Hólshúsi 1885 og við fæðingu Vilhjálms Bjarna 1886 og enn við brottför til Utah 1887.

I. Maður Vilborgar, (3. nóvember 1882), var Jón Jónsson húsmaður frá Oddsstöðum, f. 22. janúar 1857.
Börn þeirra hér:
1. Helgi Guðjón Jónsson, f. 27. ágúst 1880, d. 20. júlí 1882 úr mislingum.
2. Guðbjörg Jónína Jónsdóttir, f. 30. mars 1884. Hún fluttist til Utah 1887.
3. Vilhjálmur Bjarni Jónsson, f. 22. desember 1886. Fluttist til Utah 1887.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.