Halla Guðmundsdóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. maí 2014 kl. 20:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. maí 2014 kl. 20:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Halla Guðmundsdóttir (Kirkjubæ)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Halla og Guðjón.

Halla Guðmundsdóttir húsfreyja í Norðurbænum á Kirkjubæ fæddist 29. ágúst 1875 og lést 6. september 1939.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Þórarinsson bóndi á Vesturhúsum, f. 28. desember 1850, d. 13. mars 1916, fórst við Álsey, og kona hans Guðrúnar Erlendsdóttir, f. 1. febrúar 1841, d. 14. júní 1928.
Systkini hennar voru:
Guðleif Guðmundsdóttir húsfreyja í Holti, fyrri kona Vigfúsar Jónssonar,
Magnús Guðmundsson útvegsbóndi og formaður á Vesturhúsum, kvæntur Jórunnar Hannesdóttur,
Þórdís Guðmundsdóttir húsfreyja á Sælundi, fyrri kona Jóels Eyjólfssonar.
Halla ólst upp með foreldrum sínum á Vesturhúsum. Hún var á Vesturhúsum 1890, giftist Guðjóni 1899.
Á manntali 1901 er hún gift húsfreyja á Kirkjubæ með Guðjóni manni sínum og barninu Guðmundi Guðjónssyni. Þar er einnig Jórunn Skúladóttir tengdamóðir hennar, Jóel Eyjólfsson mágur hennar og fósturbarnið Finnbogi Finnbogason 10 ára.
Við manntal 1910 eru mætt börnin, auk
1. Guðmundar:
2. Jóhann,
3. Gunnar,
4. Sigrún,
5. Þórdís og
6. Jórunn.

1920 hafa bæst við
7. Þórarinn,
8. Gísli,
9. Lilja.
Alls búa þá í Norðurbænum 11 manns.

Lífið í Norðurbænum tengdist aðallega landbúnaði, sjósókn og tekju fugla og eggja.
Guðjón var flestum snjallari í bjargferðum og komst þar í hann krappann og oft mátti litlu muna að illa færi, t.d. við jarðskjálftann 1896.
Þetta líf krafðist fórna.
Þau hjón Halla og Guðjón þurftu að sjá af fjórum sonum sínum í sjónn:
Jóhann drukknaði 20. ágúst 1924,
Guðmundur drukknaði 16. desmber 1924,
Gunnar drukknaði 6. febrúar 1938,
Gísli drukknaði um leið, 6. febrúar 1938.
Lilju misstu þau 1921 á fimmta árinu.

Maður Höllu var Guðjón Eyjólfsson bóndi, útgerðarmaður og bjargveiðimaður, f. 9. mars 1872, d. 14. júlí 1935.
Foreldrar hans voru:
Eyjólfur Eiríksson bóndi á Kirkjubæ, f. 9. október 1835, d. 2. febrúar 1897 og kona hans Jórunn Skúladóttir húsfreyja, f. 26. nóvember 1835, d. 3. júlí 1909.

Börn Höllu og Guðjóns voru:
1. Guðmundur, fæddur 28. apríl 1900, drukknaði 16. desember 1924. Bátur, sem var á leið út í e.s. Gullfoss frá Eiðinu, mun hafa verið ofhlaðinn og bar ekki þá 8 menn, sem um borð voru.
2. Jóhann, fæddur 20. desember 1901, drukknaði 20. ágúst 1924, féll af heyflutningabát, sem sótti til Landeyjasands.
3. Gunnar, fæddur 6. desember 1905, drukknaði 6. febrúar 1938.
4. Sigrún vinnukona í Svanhól, fædd 9. júlí 1907, dáin 20. júní 1967, ógift, átti eitt barn.
5. Þórdís húsfreyja, fædd 26. nóvember 1908, dáin 2. júní 1995, kona Sigurðar Bjarnasonar skipstjóra í Svanhól.
6. Jórunn húsfreyja í Presthúsum, fædd 14. febrúar 1910, dáin 28. nóvember 1995, kona Guðmundar Guðjónssonar verkstjóra frá Oddsstöðum.
7. Þórarinn, fæddur 20. janúar 1912, d. 7. maí 1992, ókvæntur, barnlaus.
8. Gísli, fæddur 20. janúar 1914, drukknaði 6. febrúar 1938. Þeir bræður Gunnar og Gísli voru á sama bát, sem lenti upp í Sand fram af V-Landeyjum.
9. Lilja, f. 16. október 1915, d. 10. mars 1921.


Heimildir