Sigrún Guðjónsdóttir (Svanhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigrún Guðjónsdóttir (Silla í Svanhól) frá Kirkjubæ, vinnukona fæddist 9. júlí 1907 og lést 20. júní 1967.
Foreldrar hennar voru Guðjón Eyjólfsson bóndi á Kirkjubæ, f. 9. mars 1872, d. 14. júlí 1935, og kona hans Halla Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 29. ágúst 1875, d. 6. september 1939.

Börn Höllu og Guðjóns á Kirkjubæ voru:
1. Guðmundur sjómaður, f. 28. apríl 1900, drukknaði 16. desember 1924.
2. Jóhann Eyjólfur sjómaður, f. 20. desember 1901, drukknaði 20. ágúst 1924.
3. Gunnar Guðjónsson, f. 12. október 1903, d. 21. nóvember 1903.
4. Kristinn Guðjónsson, f. 7. október 1904, d. 18. október 1904.
5. Gunnar skipstjóri, f. 6. desember 1905, drukknaði 6. febrúar 1938.
6. Sigrún vinnukona, f. 9. júlí 1907, d. 20. júní 1967.
7. Þórdís húsfreyja, f. 26. nóvember 1908, d. 2. júní 1995, kona Sigurðar Bjarnasonar.
8. Jórunn Ingunn húsfreyja, f. 14. febrúar 1910, d. 28. nóvember 1995, kona Guðmundar Guðjónssonar.
9. Þórarinn bifreiðastjóri, f. 20. janúar 1912, d. 7. maí 1992, ókvæntur.
10. Gísli vélstjóri, f. 20. janúar 1914, drukknaði 6. febrúar 1938.
11. Lilja, f. 16. október 1915, d. 10. mars 1921.
12. Emma Kristín Reyndal húsfreyja, verslunarkona á Akranesi, f. 25. janúar 1917, d. 25. október 2001. Hún varð kjörbarn Jóhanns Péturs Reyndals bakarameistara í Tungu og konu hans Halldóru Guðmundu Kristjánsdóttur Reyndal húsfreyju.
13. Andvana drengur, f. 4. mars 1918.
14. Kjartan, f. 22. apríl 1919, d. 3. maí 1919.

Sigrún var með foreldrum sínum og síðan ekkjunni móður sinni til 1940, er hún flutti á heimili Þórdísar systur sinnar í Svanhól. Þar var hún vinnukona.
Hún eignaðist barn 1944.
Sigrún lést 1967.

Barn Sigrúnar var
1. Þórey Guðjóns húsfreyja, fiskiðnaðarkona, starfsmaður leikskóla, f. 1. ágúst 1944 í Svanhól, d. 31. desember 2000 á Selfossi.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.