Árni Hreiðarsson (Stóra-Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. janúar 2015 kl. 18:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. janúar 2015 kl. 18:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árni Hreiðarsson bóndi á Kirkjubæ og í Gerði fæddist 1743 og lést 6. júlí 1803.
Faðir hans var Hreiðar Hreiðarsson bóndi á Kirkjubæ, f. 1721, d. 23. mars 1802. Móðir Árna er ókunn.
Systkini Árna í Eyjum voru a.m.k.:
1. Guðmundur Hreiðarsson, líklega sonur Hreiðars Hreiðarssonar, f. 1746, drukknaði 16. febrúar 1793. Úr prþj.bók 1787, - guðfeðgin 1787: „Árni og Guðmundur Hreiðarssynir...“. Þeir voru guðfeðgar hjá Eyjólfi Hreiðarssyni.
2. Eyjólfur Hreiðarsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1747, d. 13. september 1827.
3. Ingibjörg Hreiðarsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 1762, líklega látin á bilinu 1813-1816.
4. Þórunn Hreiðarsdóttir húsfreyja, f. 1765, d. 21. mars 1821.

Kona Árna var Guðný Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1740, d. 15. september 1794 úr holdsveiki.
Börn þeirra eru ókunn.


Heimildir