Eyjólfur Hreiðarsson (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Eyjólfur Hreiðarsson bóndi á Vilborgarstöðum fæddist 1747 og lést 13. september 1827.
Faðir hans var Hreiðar Hreiðarsson, f. um 1721, ekkill á Vilborgarstöðum 1801, d. þar 23. mars 1802.

Eyjólfur var bóndi á Vilborgarstöðum, var þar 1794, 1801 og 1816.
Systkini Eyjólfs í Eyjum voru:
1. Árni Hreiðarsson bóndi í Gerði og á Kirkjubæ, f. 1743, d. 6. júlí 1803.
2. Guðmundur Hreiðarsson, líklega sonur Hreiðars Hreiðarssonar, f. 1746, drukknaði 16. febrúar 1793. Úr prþj.bók 1787, - guðfeðgin 1787: „Árni og Guðmundur Hreiðarssynir...“. Þeir voru guðfeðgar hjá Eyjólfi Hreiðarssyni.
3. Ingibjörg Hreiðarsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 1762, líklega látin á bilinu 1813-1816.
4. Þórunn Hreiðarsdóttir húsfreyja, f. 1765, d. 21. mars 1821.

I. Fyrri kona Eyjólfs var Elísabet Eiríksdóttir húsfreyja, f. 1760, d. 6. mars 1809. Hún ól a.m.k. 12 börn, 11 dóu úr ginklofa og eitt fæddist andvana.
Börn þeirra hér:
1. Jón Eyjólfsson, f. í desember 1785, d. 8. janúar 1786 úr ginklofa.
2. Eiríkur Eyjólfsson, f. 6. mars 1787, d. 12. mars 1787 úr ginklofa.
3. Björn Eyjólfsson, f. 4. maí 1788, d. 12. maí 1788 úr ginklofa.
4. Guðmundur Eyjólfsson, f. 26. apríl 1789, d. 4. maí 1789 úr ginklofa.
5. Þóra Eyjólfsdóttir, f. 7. september 1790, d. 13. september 1790 úr ginklofa.
6. Guðrún Eyjólfsdóttir, f. í janúar 1792, d. 23. janúar 1792 úr ginklofa.
7. Rannveig Eyjólfsdóttir, f. 7. apríl 1793, d. 13. apríl 1793 úr ginklofa.
8. Sigríður Eyjólfsdóttir, f. 24. mars 1794, d. 29. mars 1794 úr ginklofa.
9. Guðríður Eyjólfsdóttir, f. 24. júlí 1795, d. 28. júlí 1795 úr ginklofa.
10. Andvana barn, f. 7. september 1796.
11. Ingveldur Eyjólfsdóttir, f. 27. febrúar 1798, d. 6. mars 1798 úr ginklofa.
12. Sigurður Eyjólfsson, f. 18. desember 1801, d. 27. desember 1801 úr ginklofa.

II. Síðari kona Eyjólfs, (29. september 1810), var Sólrún Bjarnadóttir húsfreyja, f. 1772 á Oddsstöðum. Hún var sögð 35 ára, en hann 64 ára. Hún var húsfreyja á Vilborgarstöðum 1816, ekkja á Kirkjubæ 1835.
Sólrún var áður gift Ólafi Sigvaldasyni bónda, f. 1762, d. 1. september 1810.
Börn þeirra Sólrúnar hér:
13. Ólafur Eyjólfsson, tvíburi, f. 13. nóvember 1811. Hann hrapaði til bana úr Heimakletti 9. júní 1833.
14. Elísabet Eyjólfsdóttir, tvíburi, f. 13. nóvember 1811, d. 18. nóvember 1811 úr „Barnaveikindum“.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.