Guðbjörg Arnbjörnsdóttir (Hvíld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. maí 2015 kl. 12:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. maí 2015 kl. 12:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðbjörg Arnbjörnsdóttir''' í Hvíld fæddist 22. desember 1891 í Jómsborg og lést 18. maí 1944.<br> Faðir hennar var [[Arnbjörn Ögmundsson (Presthúsum)|Arnbj...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörg Arnbjörnsdóttir í Hvíld fæddist 22. desember 1891 í Jómsborg og lést 18. maí 1944.
Faðir hennar var Arnbjörn bóndi í Prestshúsum, f. 18. apríl 1853 að Reynisholti í Mýrdal, d. 1. júní 1941, Ögmundsson bónda þar, og kona hans Elísabet Bergsdóttir, f. 5. desember 1857, d. 6. júlí 1928. dóttir Bergs bónda Magnússonar, er hrapaði í Dufþekju 23. ágúst 1866 og var bróðir Ólafs skálds í Nýborg, en móðir Elísabetar var Sigþrúður Ormsdóttir á Vilborgarstöðum.

Föðurbræður Guðbjargar voru Ögmundur í Landakoti og Jón faðir Þóru í Dalbæ.
Móðurfaðir Guðbjargar var Bergur bóndi Magnússon, er hrapaði í Dufþekju 23. ágúst 1866, og var hann bróðir Ólafs skálds í Nýborg, en móðir Elísabetar var Sigþrúður Ormsdóttir á Vilborgarstöðum.
Systkini Guðbjargar voru:
1. Bergmundur Arnbjörnsson í Nýborg, f. 17. október 1883 í Helgahjalli, d. 28. nóvember 1952.
2. Þorbjörn Arnbjörnsson á Reynifelli, f. 8. október 1886 í Helgahjalli, d. 10. nóvember 1965.
3. Ágústa Arnbjörnsdóttir húsfreyju í Hvíld við Faxastíg, f. 11. ágúst 1899 á Oddsstöðum, d. 24. maí 1989.

Guðbjörg bjó með foreldrum sínum 1910, bjó þar, er hún eignaðist Elísabetu Hrefnu 1913, og enn 1920 og með föður sínum 1930.
Hún lést 1944.

I. Barnsfaðir Guðbjargar var Eyjólfur Ólafsson bakari í Reykjavík.
Barn þeirra var
1. Elísabet Hrefna Eyjólfsdóttir, f. 8. júní 1913 í Presthúsum, d. 13. júlí 1984, Hún ólst upp hjá móðurforeldrum sínum og Guðbjörgu móður sinni. Maður hennar var Tómas E. Sigurðsson bifvélavirki, f. 1914. Hún bjó síðast að Brekastíg 7c, Efri-Hvoli.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.