Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir
Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir frá Háagarði, síðar að Goðasteini, en síðast að Kirkjubæjarbraut 17, - nú búsett í Reykjavík, - húsfreyja, bankastarfsmaður, fæddist að Þingeyri við Skólaveg 27. maí 1930.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Þ. Víglundsson, f. 1899 og k.h. Ingigerður Jóhannsdóttir, f. 1902.
Lífsferill
Kristín gekk í Gagnfræðaskólann, var afgreiðslukona í Bjarma (þá vefnaðarvöruverzlun Helga Benediktssonar) og síðar talsímakona við Símstöðina í Vestmannaeyjum. Hún gekk í Húsmæðraskólann í Rvk 1950-51, rak stórt heimili í Eyjum og Reykjavík, vann hjá Sparisjóði Vestmannaeyja í Seðlabankanum í Landsbankahúsinu gostímann 1973-74, starfsmaður Landsbankans 1974-99.
Maki (26. júlí 1952): Sigfús Jörundur Árnason Johnsen kennari, f. 1930, d. 2. nóv. 2006.
Börn þeirra:
1. Þorsteinn Ingi dr., prófessor, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, f. 1954.
2. Árni bæjarstjóri í Reykjanesbæ, f. 1956.
3. Gylfi forstjóri Eimskipafélags Íslands, f. 1961.
4. Margrét innanhússarkitekt, f. 1963.
5. Þór framkvæmdastjóri Sjávarklasans ehf., f. 1964.
6. Sif mannauðsfræðingur, markaðs-og samskiptastjóri, f. 1967.
Heimildir
- Upphaflegu greinina skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson
- Pers.