Guðríður Hallvarðsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. mars 2007 kl. 22:15 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. mars 2007 kl. 22:15 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðríður Hallvarðsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 24. febrúar 1826 í Stóra-Dal u. Eyjafjöllum.

Ætt og uppruni

Foreldrar hennar voru Hallvarður bóndi í Neðri-Dal, f. 12. desember 1791 á Hryggjum í Mýrdal, d. 4. júlí 1872 í Neðri-Dal, Jóns bónda á Hryggjum, f. 1751, d. 1827, Magnússonar og konu Jóns bónda, Vigdísar húsfreyju, f. 1763, d. 1813. Móðir Guðríðar og kona Hallvarðs var Ingibjörg húsfreyja, f. 1795 í Stóradalssókn, d. 14. apríl 1846 þar, Jóns bónda og hreppstjóra í Stóru-Mörk u. Eyjafjöllum, f. 1755, d. 1822, Guðmundssonar bónda, Ögmundssonar og konu Jóns hreppstjóra, Sigríðar húsfreyju, f. 1763 á Felli í Suðursveit, d. um 1816, Jónsdóttur, Sigurðar sýslumanns Stefánssonar.

Lífsferill

Guðríður var í heimahúsum 1845. Hún giftist Birni Einarssyni, síðar bónda á Kirkjubæ 18. október 1855.
Þau Björn fluttust frá Forsæti í Landeyjum að Sjólyst í Eyjum 1860 og með þeim Guðbjörg 6 ára og Finnbogi 4 ára, en árið 1861 fluttust þau að Kirkjubæ (4. býli) og bjuggu þar meðan Björn lifði (til 1884).
Börn og nokkrir afkomendur Björns og Guðríðar:

  1. Guðbjörg Björnsdóttir húsfreyja í Gerði, f. 28. júní 1854, kona Jóns Jónssonar, f. 25. júlí 1853 (22. júlí 1854 í prþjb.), en þau voru foreldrar Jónínu Ingibjargar húsfreyju í Gerði og Björns Eiríks bónda í Gerði; og þau Guðbjörg og Jón voru fósturforeldrar Magnúsar á Hrafnabjörgum.
  2. Finnbogi Björnsson (sjá hann).
  3. Guðjón Björnsson bóndi á Kirkjubóli, f. 1. maí 1862, maður Ólafar Lárusdóttur, en þau voru foreldrar Þórðar, Guðjóns Bergs, Björns Friðriks og Láru húsfreyju á Kirkjulandi, konu Björns Finnbogasonar.
  4. Ingibjörg Björnsdóttir húsfreyja í Pétursborg, f. 1. september 1867, kona Sigurðar Vigfússonar, en þau voru foreldrar Vigfúsar, Hallvarðs, Finnboga, Gunnars, Björns, Jóns og Lilju.

Heimildir