Ingveldur Nikulásdóttir (Skaftafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júní 2024 kl. 17:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júní 2024 kl. 17:44 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Ingveldur Nikulásdóttir.

Ingveldur Nikulásdóttir á Skaftafelli við Vestmannabraut 62, húsfreyja í Gerðiskoti í Gaulverjabæjarhreppi fæddist þar 27. desember 1867 og lést 1. september 1942.
Foreldrar hennar voru Nikulás Halldórsson bóndi, f. 1. febrúar 1831, d. 8. október 1883, og Vilborg Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 14. desember 1829, d. 30. janúar 1905.

Ingveldur var með foreldrum sínum í æsku, í Gerðiskoti og á Hamri í Gaulverjabæjarhreppi, en faðir hennar lést, er hún var á sextánda árinu.
Hún var vinnukona í Gaulverjabæ 1890, ógift húsfreyja í Gerðiskoti 1901 með Þórólfi ekkli og fjórum börnum þeirra, var lausakona í Árbæjarhjáleigu í Flóa við fæðingu Einars 1905, leigjandi á Vorsabæjarhóli í Gaulverjabæjarsókn 1910 með Nikolínu Vilborgu og Einar hjá sér.
Ingveldur flutti til Eyja 1915, var móðir húsfreyjunnar á Skaftafelli í Eyjum 1920 og enn 1940.

I. Sambúðarmaður Ingveldar var Þórólfur Jónsson frá Kjalvararstöðum í Reykholtsdal, Borg., bóndi, f. 24. ágúst 1844, d. 7. apríl 1916. Börn Ingveldar og Þórólfs:
1. Bríet Þórólfsdóttir húsfreyja á Iðu í Biskupstungum, Árn., f. 5. október 1891, d. 28. febrúar 1970. Maður hennar Jóhann Kristinn Guðmundsson.
2. Halldóra Kristín Þórólfsdóttir húsfreyja á Skaftafelli, f. 10. júlí 1893 að Hólmaseli í Gaulverjabæjarhreppi, d. 10. janúar 1985. Maður hennar Guðjón Hafliðason.
3. Ingvar Þórólfsson útgerðarmaður í Birtingarholti, f. 27. mars 1896 á Króki í Flóa, d. 13. apríl 1975. Kona hans Þórunn Friðriksdóttir.
4. Nikólína Vilborg Þórólfsdóttir húsfreyja, f. 6. október 1899, d. 24. október 1989. Maður hennar Þórarinn Jónsson Wíum.

II. Barnsfaðir Ingveldar var Guðjón Ingimundarson ókvæntur bóndi í Súluholti í Hraungerðissókn, Árn., f. 26. júlí 1877, d. 3. júlí 1911.
Barn þeirra:
5. Einar Guðjónsson verkamaður, f. 14. júlí 1905 í Árbæjarhjáleigu í Flóa, d. 17. febrúar 1931.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.