Örn Óskarsson (Boðaslóð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. maí 2024 kl. 18:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. maí 2024 kl. 18:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Örn Óskarsson''' frá Hólnum við Landagötu 18, pípulagningameistari í Rvk fæddist 18. febrúar 1953 að Boðaslóð 27.<br> Foreldrar hans voru Óskar Ólafsson frá Vestari-Torfastöðum í Fljótshlíð, pípulagningameistari, f. 15. ágúst 1905, d. 23. janúar 1986, og kona hans Kristín Jónsdóttir frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði, húsfreyja, f. þa...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Örn Óskarsson frá Hólnum við Landagötu 18, pípulagningameistari í Rvk fæddist 18. febrúar 1953 að Boðaslóð 27.
Foreldrar hans voru Óskar Ólafsson frá Vestari-Torfastöðum í Fljótshlíð, pípulagningameistari, f. 15. ágúst 1905, d. 23. janúar 1986, og kona hans Kristín Jónsdóttir frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði, húsfreyja, f. þar 9. nóvember 1911, d. 1. nóvember 1992.

Börn Kristínar og Óskars:
1. Adolf Óskarsson pípulagningameistari, afreksmaður í íþróttum, f. 30. nóvember 1928 á Hólnum við Landagötu 18, síðast í Hafnarfirði, d. 15. desember 2008. Kona hans Ásta Vigfúsdóttir.
2. Jóna Guðlaug Óskarsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 16. febrúar 1930 á Hólnum við Landagötu 18, d. 15. ágúst 2006. Maður hennar Kristleifur Magnússon.
3. Aðalheiður Óskarsdóttir húsfreyja, f. 8. nóvember 1934 á Grímsstöðum. Maður hennar Þorleifur Sigurlásson.
4. Guðmunda Eygló Óskarsdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1937 á Hólnum við Landagötu 18. Maður hennar Svavar Steingrímsson.
5. Kristín Ósk Óskarsdóttir húsfreyja, f. 14. október 1940 á Hólnum. Maður hennar Friðbjörn Kristjánsson.
6. Ólafur Óskarsson pípulagningamaður, f. 27. maí 1944 á Hólnum, d. 9. ágúst 1986. Kona hans Harpa Njálsdóttir Andersen.
7. Albína Elísa Óskarsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, glerlistarkona, f. 25. júní 1945 á Hólnum, d. 29. júní 2008. Maður Huginn Sveinbjörnsson.
8. Hrefna Óskarsdóttir húsfreyja, f. 30. apríl 1951 á Sj.h. Maður hennar Kristján Ingólfsson.
9. Örn Óskarsson pípulagningameistari í Reykjavík, f. 18. febrúar 1953 að Boðaslóð 27. Kona Hulda Kjærnested.
10. Guðrún Óskarsdóttir húsfreyja, f. 12. nóvember 1957 að Boðaslóð 27. Maður hennar Almar Hjarðar.

Örn var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði pípulagnir og öðlaðist meistararéttindi.
Þau Hulda giftu sig 1976, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Dalbraut í Reykjavík.

I. Kona Arnar, (14. ágúst 1976), er Hulda Guðmunda Stefánsdóttir Kjærnested, húsfreyja, þjónustufulltrúi, f. 1. janúar 1955. Foreldrar hennar Sverrir Völundur Halldórsson Kjærnested, prentari, f. 1. ágúst 1930, d. 6. janúar 2021, og kona hans Margrét Bjarney Stefánsdóttir, húsfreyja, f. 15. júní 1931 á Fagrafelli við Hvítingaveg 5.
Börn þeirra:
1. Margrét Arnardóttir, f. 2. október 1974.
2. Sara Kristín Arnardóttir, f. 12. september 1984.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.