Guðrún Óskarsdóttir (Boðaslóð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Óskarsdóttir, húsfreyja, fiskverkakona, skólaliði, fæddist 12. nóvember 1957.
Foreldrar hennar voru Óskar Ólafsson frá Vestari-Torfastöðum í Fljótshlíð, pípulagningameistari, f. 15. ágúst 1905, d. 23. janúar 1986, og kona hans Kristín Jónsdóttir frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði, húsfreyja, f. þar 9. nóvember 1911, d. 1. nóvember 1992.

Börn Kristínar og Óskars:
1. Adolf Óskarsson pípulagningamaður, afreksmaður í íþróttum, f. 30. nóvember 1928 á Hólnum við Landagötu 18, síðast í Hafnarfirði, d. 15. desember 2008. Kona hans Ásta Vigfúsdóttir.
2. Jóna Guðlaug Óskarsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 16. febrúar 1930 á Hólnum við Landagötu 18, d. 15. ágúst 2006. Maður hennar Kristleifur Magnússon.
3. Aðalheiður Óskarsdóttir húsfreyja, f. 8. nóvember 1934 á Grímsstöðum. Maður hennar Þorleifur Sigurlásson.
4. Guðmunda Eygló Óskarsdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1937 á Hólnum við Landagötu 18. Maður hennar Svavar Steingrímsson.
5. Kristín Ósk Óskarsdóttir húsfreyja, f. 14. október 1940 á Hólnum. Maður hennar Friðbjörn Kristjánsson.
6. Ólafur Óskarsson pípulagningamaður, f. 27. maí 1944 á Hólnum, d. 9. ágúst 1986. Kona hans Harpa Njálsdóttir Andersen.
7. Albína Elísa Óskarsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, glerlistarkona, f. 25. júní 1945 á Hólnum, d. 29. júní 2008. Maður Huginn Sveinbjörnsson.
8. Hrefna Óskarsdóttir húsfreyja, f. 30. apríl 1951 á Sj.h. Maður hennar Kristján Ingólfsson.
9. Örn Óskarsson pípulagningameistari í Reykjavík, f. 18. febrúar 1953 að Boðaslóð 27. Kona Hulda Kjærnested.
10. Guðrún Óskarsdóttir húsfreyja, f. 12. nóvember 1957 að Boðaslóð 27. Maður hennar Almar Benedikt Hjarðar.

Þau Almar giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa við Vesturveg 25b.

I. Maður Guðrúnar er Almar Benedikt Hjarðar, verkstjóri, f. 28. desember 1954.
Börn þeirra:
1. Helga Kristín Almarsdóttir, f. 16. janúar 1976.
2. Páll Þorvaldur Hjarðar, f. 26. apríl 1979.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.