Jóna Guðlaug Óskarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jóna Guðlaug Óskarsdóttir.

Jóna Guðlaug Óskarsdóttir frá Hólnum við Landagötu 18, húsfreyja, matráðskona fæddist þar 16. febrúar 1930 og lést 15. ágúst 2006.
Foreldrar hennar voru Óskar Ólafsson frá Vestari-Torfastöðum í Fljótshlíð, pípulagningameistari, f. 15. ágúst 1905, d. 23. janúar 1986, og kona hans Kristín Jónsdóttir frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði, húsfreyja, f. þar 9. nóvember 1911, d. 1. nóvember 1992.

Börn Kristínar og Óskars:
1. Adolf Óskarsson pípulagningamaður, afreksmaður í íþróttum, f. 30. nóvember 1928 á Hólnum við Landagötu 18, síðast í Hafnarfirði, d. 15. desember 2008. Kona hans Ásta Vigfúsdóttir.
2. Jóna Guðlaug Óskarsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 16. febrúar 1930 á Hólnum við Landagötu 18, d. 15. ágúst 2006. Maður hennar Kristleifur Magnússon.
3. Aðalheiður Óskarsdóttir húsfreyja, f. 8. nóvember 1934 á Grímsstöðum. Maður hennar Þorleifur Sigurlásson.
4. Guðmunda Eygló Óskarsdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1937 á Hólnum við Landagötu 18. Maður hennar Svavar Steingrímsson.
5. Kristín Ósk Óskarsdóttir húsfreyja, f. 14. október 1940 á Hólnum. Maður hennar Friðbjörn Kristjánsson.
6. Ólafur Óskarsson pípulagningamaður, f. 27. maí 1944 á Hólnum, d. 9. ágúst 1986. Kona hans Harpa Njálsdóttir Andersen.
7. Albína Elísa Óskarsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, glerlistarkona, f. 25. júní 1945 á Hólnum, d. 29. júní 2008. Maður Huginn Sveinbjörnsson.
8. Hrefna Óskarsdóttir húsfreyja, f. 30. apríl 1951 á Sj.h. Maður hennar Kristján Ingólfsson.
9. Örn Óskarsson pípulagningameistari í Reykjavík, f. 18. febrúar 1953 að Boðaslóð 27. Kona Hulda Kjærnested.
10. Guðrún Óskarsdóttir húsfreyja, f. 12. nóvember 1957 að Boðaslóð 27. Maður hennar Almar Hjarðar.

Jóna var með foreldrum sínum í æsku.
Hún nam við Kvöldskóla iðnaðarmanna. Hún vann afgreiðslustörf, í netagerð og við fiskiðnað. Lengst var hún matráðskona á leikskólunum Sóla og Rauðagerði.
Jóna stundaði mikið handknattleik á yngri árum sínum.
Þau Kristleifur giftu sig 1950, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu á Hásteinsvegi 42, byggðu hús við Illugagötu 14 og bjuggu þar.
Kristleifur lést 1965.
Jóna var síðar í sambúð með Thyge Fog Brunz frá 1969. Hann lést 27. mars 1973.
Jóna lést 2006.

I. Maður Jónu Guðlaugar, (9. september 1950), var Kristleifur Magnússon netagerðarmaður, afreksmaður í íþróttum, f. 23. júlí 1929, d. 8. október 1965.
Börn þeirra:
1. Þuríður Kristín Kristleifsdóttir húsfreyja, f. 24. júlí 1949. Maður hennar Guðmundur Þorlákur Bjarni Ólafsson.
2. Þorvaldur Kristleifsson, f. 18. febrúar 1951. Kona hans Rakel Kristín Níelsdóttir.
3. Magnús Kristleifur Kristleifsson, f. 27. desember 1957. Kona hans Sigríður Petra Hansen.

II. Sambúðarmaður Jónu frá 1969 var Thyge Fog Brunz starfsmaður í Álverinu í Straumsvík, f. 8. maí 1924, d. 27. mars 1973.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.