Óskar Veigu Óskarsson (Hrafnabjörgum)
Óskar Veigu Óskarsson frá Hrafnabjörgum, rafvirki, fiskimatsmaður, yfirverkstjóri, framleiðslustjóri, sölustjóri fæddist 18. september 1950.
Foreldrar hans voru Óskar Þórarinsson húsasmíðameistari, f. 28. júní 1910 á Norðfirði, d. 17. maí 1982, og kona hans Solveig Sigurðardóttir húsfreyja, f. 19. desember 1923 á Blómsturvöllum, d. 7. desember 1994.
Börn Solveigar og Óskars:
1. Andvana fædd stúlka 28. júlí 1942.
2. Erla Óskarsdóttir húsfreyja á Akranesi, síðar verslunarmaður, sjúkrahússtarfsmaður í Reykjavík, f. 22. desember 1943. Maður hennar er Adólf Ásgrímsson rafvirkjameistari, rafmagnstæknifræðingur, f. 12. júní 1944.
3. Sigurbjörg Óskarsdóttir húsfreyja, f. 20. júní 1945. Maður hennar er Sigurður Óskarsson frá Hvassafelli, smiður, kafari, f. 24. maí 1944.
4. Þórhildur Óskarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 15. mars 1947. Maður hennar Jónas Kristinn Bergsteinsson frá Múla rafverktaki, f. 24. ágúst 1948.
5. Ólafur Óskarsson rennismíðameistari, bifreiðastjóri, f. 23. október 1948. Kona hans er Jóna Jónsdóttir húsfreyja, læknafulltrúi frá Gerði, f. 5. maí 1950.
6. Óskar Veigu Óskarsson rafvirki, svæðissölustjóri hjá Marel, f. 18. september 1950. Kona hans var Bergþóra Jónsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, f. 24. ágúst 1953, d. 13. ágúst 2012.
7. Þráinn Veigu Óskarsson húsasmíðameistari í Kópavogi, f. 1. nóvember 1953. Kona hans er Guðný Júlíana Garðarsdóttir húsfreyja, sölumaður, f. 15. desember 1959.
8. Dagmar Óskarsdóttir húsfreyja í Kópavogi, sjúkraliði, f. 3. júní 1962. Sambýlismaður hennar er Jón Berg Torfason þroskaþjálfi, f. 14. mars 1971.
9. Hafdís Óskarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 15. desember 1963. Fyrrum maður hennar Sigurjón Kristinsson læknir, f. 16. mars 1964. Sambýlismaður Hafdísar er Hermann Smárason, f. 12. mars 1959.
Óskar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann nam rafvirkjun við Iðnskólann í Eyjum og lauk sveinsprófi 1977. Meistari hans var Jónas Kristinn Bergsteinsson. Hann fékk fiskimatsréttindi 1971.
Hann vann hjá Stafnesi hf., F.E.S., Þorgeiri og Ellert og á Grundartanga.
Óskar var rafvirki í 2 mánuði og síðan verkstjóri í Hraðfrystistöðinni í 12 ár og eftir samruna hennar og Ísfélagsins var hann yfirverkstjóri hjá Ísfélaginu um skeið. Hann hélt til Seyðisfjarðar og var framleiðslustjóri hjá Dvergasteini á Seyðisfirði í eitt ár.
Óskar réðst til Marels og var þar rafvirki í hálft ár og hefur síðan verið þar sölustjóri að undanskildum 4 árum, er hann var framleiðslustjóri hjá Ísfélaginu og framleiðslustjóri hjá Skelfiskvinnslunni í Stykkishólmi um hálfs árs skeið í Gosinu 1973.
Þau Bergþóra giftu sig 1974, eignuðust 3 börn. Þau bjuggu í Skipholti við Vestmannabraut 46b í fyrstu, þá í Mandal við Njarðarstíg 18 við Gos 1973, síðan á Foldahrauni 26 og á Goðahrauni 7.
Þau fluttu til Hafnarfjarðar og bjuggu þar síðast við Suðurbraut 24.
Bergþóra lést 2012.
Óskar býr nú á Hverfisgötu 93 í Reykjavík.
I. Kona Óskars, (12. apríl 1974), var Bergþóra Jónsdóttir húsfreyja, f. 24. ágúst 1953, d. 13. ágúst 2012.
Börn þeirra:
1. Jóna Dóra Óskarsdóttir húsfreyja, meistari í snyrtifræði og snyrtifræðikennari, f. 12. apríl 1972. Maður hennar Óskar Rúnar Harðarson.
2. Sigþór Óskarsson rafeindavirki, f. 27. september 1974. Kona hans Jariya Tuanjit.
3. Maren Óskarsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 18. september 1979. Fyrrum maður hennar Valdimar Kristjánsson. Maður hennar Viðar Örn Eðvarðsson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
- Íslendingabók.is.
- Morgunblaðið 25. ágúst 2012. Minning Bergþóru.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.