Sigurbjörg Óskarsdóttir (Hrafnabjörgum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurbjörg Óskarsdóttir frá Hrafnabjörgum, húsfreyja, ræstitæknir fæddist 20. júní 1945.
Foreldrar hennar voru Óskar Þórarinsson húsasmíðameistari, f. 28. júní 1910 á Norðfirði, d. 17. maí 1982, og kona hans Solveig Sigurðardóttir húsfreyja, f. 19. desember 1923 á Blómsturvöllum, d. 7. desember 1994.

Börn Solveigar og Óskars:
1. Andvana fædd stúlka 28. júlí 1942.
2. Erla Óskarsdóttir húsfreyja á Akranesi, síðar verslunarmaður, sjúkrahússtarfsmaður í Reykjavík, f. 22. desember 1943. Fyrrum maður hennar er Adólf Ásgrímsson rafvirkjameistari, rafmagnstæknifræðingur, f. 12. júní 1944.
3. Sigurbjörg Óskarsdóttir húsfreyja, f. 20. júní 1945. Maður hennar er Sigurður Óskarsson frá Hvassafelli, smiður, kafari, f. 24. maí 1944.
4. Þórhildur Óskarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 15. mars 1947. Maður hennar Jónas Kristinn Bergsteinsson frá Múla rafverktaki, f. 24. ágúst 1948.
5. Ólafur Óskarsson rennismíðameistari, bifreiðastjóri, f. 23. október 1948. Kona hans er Jóna Jónsdóttir húsfreyja, læknafulltrúi frá Gerði.
6. Óskar Veigu Óskarsson rafvirki, svæðissölustjóri hjá Marel, f. 18. september 1950. Barnsmóðir hans er Sigríður Gísladóttir. Kona hans var Bergþóra Jónsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, f. 24. ágúst 1953, d. 13. ágúst 2012.
7. Þráinn Veigu Óskarsson húsasmíðameistari í Kópavogi, f. 1. nóvember 1953. Kona hans er Guðný Júlíana Garðarsdóttir húsfreyja, sölumaður.
8. Dagmar Óskarsdóttir húsfreyja í Kópavogi, sjúkraliði, f. 3. júní 1962. Barnsfaðir hennar Egill Þór Steinþórsson. Fyrrum maður hennar Högni Þór Hilmisson. Sambýlismaður hennar er Jón Berg Torfason þroskaþjálfi.
9. Hafdís Óskarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 15. desember 1963. Maður hennar var Sigurjón Kristinsson. Sambúðarmaður Hafdísar var Sigurbjörn Ófeigur Hallgrímsson, látinn. Maður Hafdísar er Hermann Smárason, f. 12. mars 1959.

Sigurbjörg var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann aðallega við fiskiðnað og ræstingar.
Þau Sigurður giftu sig 1971, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu á Helgafellsbraut 31 til 1973, á Fjólugötu 21 í 25 ár, bjuggu í Vík í Mýrdal í eitt ár, á Selfossi í 6 mánuði, þá leigðu þau á Áshamri um skeið, síðan á Foldahrauni 4, þá við Strembugötu, en búa nú á Áshamri 36.

ctr
Sigurbjörg, Sigurður og börn.

I. Maður Sigurbjargar, (26. desember 1971), er Sigurður Óskarsson frá Hvassafelli, húsasmíðameistari, kafari, eftirlitsmaður, stjórnarformaður, útgerðarmaður, kennari, f. 24. maí 1944.
Börn þeirra:
1. Sólveig Sigurðardóttir verkakona, síðar í Reykjavík, f. 4. júlí 1965. Fyrrum eiginmaður Þórður Svansson Jónssonar. Fyrrum maður hennar Daði Ragnarsson.
2. Óskar Sigurðsson trésmiður, nú prédikari á Nýja-Sjálandi, f. 23. júlí 1971. Kona hans Gunnlaug Rósalind Sigurðardóttir.
3. Soffía Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2. desember 1978. Maður hennar Stefnir Snorrason Óskarssonar.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.