Sveinn Halldórsson (Kalmanstjörn)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. október 2019 kl. 14:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. október 2019 kl. 14:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sveinn Gunnþór Halldórsson''' frá Kalmanstjörn, sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, síðar hafnarvörður fæddist 2. maí 1938 í Skólavegur| Nýhöfn, Skólav...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sveinn Gunnþór Halldórsson frá Kalmanstjörn, sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, síðar hafnarvörður fæddist 2. maí 1938 í Nýhöfn, Skólavegi 23.
Foreldrar hans voru Halldór Jónsson frá Garðstöðum, sjómaður, vélstjóri, verkamaður, f. 28. september 1908 á Löndum, d. 4. júlí 1976, og kona hans Karólína Ágústa Sveinsdóttir frá Seyðisfirði, húsfreyja, f. 19. nóvember 1919, d. 26. júní 1984.

Börn Ágústu og Halldórs:
1. Sveinn Gunnþór Halldórsson, f. 2. maí 1938 á Skólavegi 23, vélstjóri, útgerðarmaður, hafnarvörður, kvæntur Þóru Birgit Bernódusdóttur, látin.
2. Gunnar Halldórsson, f. 9. janúar 1940 í Skálholti, vélstjóri, kranabílstjóri, kvæntur fyrr, skildu, Jóhönnu Andersen, síðan Valdísi Magnúsdóttur.
3. Þórunn Dóra Halldórsdóttir, húsfreyja, fiskvinnslukona, f. 22. júlí 1948 á Kalmanstjörn, gift Halldóri R. Martinez, látinn.
4. Grétar Halldórsson tvíburi, f. 8. desember 1952 á Kalmanstjörn, sjómaður, vélstjóri, d. 19. september 1987. Kona hans er Guðný Bóel Guðbjartsdóttir.
5. Andvana tvíburi, f. 8. desember 1952 á Kalmanstjörn.

Sveinn var með foreldrum sínum í æsku, í Nýhöfn, í Skálholti við Landagötu og á Kalmanstjörn.
Hann nam vélstjórn 1957 í Eyjum, vann við sjómennsku og var vélstjóri, m.a. á bátum hjá Einari Sigurðssyni, á Hrauney, Metu og Andvara. Þá var hann meðeigandi að Öðlingi VE 202 með Willum Andersen 1974-1979.
Sveinn varð hafnarvörður 1988 og gegndi því starfi í 20 ár.
Þau Þóra Birgit giftu sig 1961, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Byggðarholti við fæðingu Ágústu Berg, síðan á Stóru-Heiði við Sólhlíð, en keyptu húsið við Brimhólabraut 17 1966 og bjuggu þar síðan nema nokkra mánuði í Gosinu, en þá bjuggu þau í Ölfusborgum.
Þóra Birgit lést 2013. Sveinn býr á Brimhólabraut 17.

I. Kona Sveins, (26. desember 1961), var Þóra Birgit Bernódusdóttir húsfreyja, verkakona, klinikdama, f. 8. desember 1942 í London, d. 26. janúar 2013.
Börn þeirra:
1. Ágústa Berg Sveinsdóttir húsfreyja, leikskólakennari á Seyðisfirði, f. 9. ágúst 1960. Maður hennar Gunnar Árni Vigfússon.
2. Bára Sveinsdóttir húsfreyja, f. 1. maí 1962, d. 4. febrúar 2004. Maður hennar Jóhannes K. Steinólfsson. Barnsfaðir hennar Þorlákur Guðmundsson.
3. Bernódus Sveinsson slökkviliðsmaður á Seltjarnarnesi, f. 19. júní 1971. Kona hans Kristín Björg Kristjánsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.