Bernódus Sveinsson (slökkviliðsmaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bernódus Sveinsson slökkviliðsmaður á Seltjarnarnesi fæddist 19. júní 1971.
Foreldrar hans Sveinn Gunnþór Halldórsson frá Kalmanstjörn við Vestmannabraut 3, sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, síðar hafnarvörður, f. 2. maí 1938, og kona hans Þóra Birgit Bernódusdóttir frá Borgarhól við Kirkjuveg 11, húsfreyja, fiskvinnslukona netagerðarkona, aðstoðarkona tannlæknis, f. 8. desember 1942, d. 26. janúar 2013.

Börn Þóru og Sveins:
1. Ágústa Berg Sveinsdóttir húsfreyja, leikskólakennari, f. 9. ágúst 1960. Maður hennar Gunnar Árni Vigfússon.
2. Bára Sveinsdóttir húsfreyja, f. 1. maí 1962, d. 4. febrúar 2004. Maður hennar Jóhannes K. Steinólfsson. Barnsfaðir hennar Þorlákur Guðmundsson.
3. Bernódus Sveinsson slökkviliðsmaður á Seltjarnarnesi, f. 19. júní 1971. Kona hans Kristín Björg Svövudóttir.
Barn Sveins með Ernu Sveinsdóttur:
4. Gísli Guðni Sveinsson sjómaður, f. 26. september 1958.

Þau Kristín Björg giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa á Seltjarnarnesi.

I. Kona Bernódusar er Kristín Björg Svövudóttir frá Sauðárkróki, húsfreyja, kennari, f. 17. maí 1972. Foreldrar hennar Kristján Jóhannsson, f. 21. maí 1949, og Svava Sigurbjörg Hjaltadóttir, f. 1. febrúar 1952, d. 24. febrúar 2012. Fósturfaðir Kristínar er Jónas Björnsson.
Börn þeirra:
1. Þóra Birgit Bernódusdóttir, f. 3. desember 1998.
2. Rut Bernódusdóttir, f. 23. júlí 2001.
3. Arnar Bernódusson, f. 15. september 2008.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.