Rótarýklúbbur Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júlí 2007 kl. 10:10 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júlí 2007 kl. 10:10 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Stofnun Rótarýklúbbs Vestmannaeyja og aðdragandi

Baldur Johnsen héraðslæknir í Eyjum 1951-1960, hóf undirbúning að stofnun Rótarýklúbbs Vestmannaeyja árið 1953. Hann var áður í Rótarýklúbbi Ísafjarðar. Jafnframt er þess að geta að Þorvaldur Árnason í Hafnarfirði, umdæmisstjóri 1954-1955, fékk augastað á Eyjum fyrir nýtt landnám hreyfingarinnar. Þá er Baldur hafði undirbúið málið sem honum líkaði, kom Þorvaldur til Eyja. Undirbúningsfundur var svo haldinn 24. maí 1955 í Akógeshúsinu. Á fundinn komu 14 menn sem boðaðir höfðu verið og vissu fæstir hvað Rótarý var. Þorvaldur bætti úr þeirri vanþekkingu, flutti ýtarlegt erindi um sögu og þróun hreyfingarinnar. Kosin var þriggja manna undirbúningsnefnd: Baldur Johnsen, Guðlaugur Gíslason og Páll Þorbjörnsson. Rætt hafði verið við 32 menn um þátttöku í stofnun rótarýklúbbs. Stofnfundur var haldinn í Samkomuhúsinu 26. maí 1955, 27 manns á fundi og gerðust stofnfélagar. Í stórn voru kosnir: Baldur Johnsen forseti, Magnús Bergsson varaforseti, Jón Eiríksson ritari, Baldur Ólafsson gjaldkeri og Páll Þorbjörnsson stallari. Ekki varð þess vart, að þessi félagsstofnun hafi vakið athygli í bænum. Félagar hafa aldrei barið bumbur til kynningar.

Ágrip af sögu klúbbsins

Þó ekki hafið borið mikið á Rótarýklúbbnum í bæjarlífinu hefur hann beitt sér fyrir ýmsum málefnum, líknar-og menningarmálum. Strax á fyrsta starfsári sá klúbburinn um að útvega fötluðum manni bíl og fékk hann bílinn afhentan á fundi 16. ágúst 1956. Árið 1967 stofnaði klúbburinn Minningarsjóð um Oddgeir Kristjánsson, tónskáld og var það gert að frumkvæði Jóhanns Pálssonar. Oddgeir var klúbbfélagi frá 1956 til dauðadags 1966. Á næstu árum gáfu íþróttafélögin og fleiri samtals 50 þúsund krónur í sjóðinn. Tilgangur sjóðsins var að styrkja fjárhagslega efnileg ungmenni úr Vestmannaeyjum til framhaldsnáms í tónlist og tónlistarfræðum. Meðal annars vegna gossins 1973 kom ekki til þess veittir væru styrkir úr sjóðnum en árið 1975 kom Bragi Ólafsson með tillögu um að reist yrði minnismerki um Oddgeir og var hún samþykkt. Með þáttöku fleiri aðila var minnismerkið reist á Stakkagerðistúni, er táknrænt útisvið, vígt 1. júní 1982.

Klúbburinn, með Stefáni Árnason yfirlögregluþjónn í fararbroddi, átti hlut að því að hafist var handa um fornleifarannsóknir í Herjólfsdal sem Margrét Hermannsdóttir, fornleifafræðingur, stjórnaði á árunum 1971-1981. Klúbburinn safnaði einnig hluta af peningum sem fóru í að kaupa uppstoppaðan geirfugl. Árið 1958 gaf klúbburinn út fræðslurit um Vestmannaeyjar á ensku. Baldur Johnsen samdi ritið en bærinn styrkti útgáfuna. Var því dreift erlendis, m.a. til 50 fiskibæja í Noregi. Af öðrum verkefnum sem klúbburinn hefur staðið fyrir má nefna að hann lét smíða farandbikar handa Íþróttamanni ársins í Eyjum. Nefnd klúbbfélaga valdi kappann í samráði við íþróttafélögin. Í nóvember 1983 var þessu hætt þar sem aðrir höfðu tekið að sér þetta verkefni. Einnig hefur klúbburinn, ásamt öðrum þjónustuklúbbum, keypt rannsóknatæki handa Sjúkrahúsi Vestmannaeyja, ljósritunarvél handa Safnahúsi Vestmannaeyja, hlífðarplötur á gólf Íþróttamiðstöðvarinnar, heyrnmælingatæki fyrir skólahjúkrun, tvívegis, myndlykil fyrir Hraunbúðir o.m.fl. Þá hefur klúbburinn gefið jólatré á sambýli fatlaðra nokkur undanfarin ár, styrkt meðferðarheimilið Búhamri 17 og í tvígang unnið að landgræðsluverkefnum á Haugasvæðinu. Stýrimannaskólinn og Tónlistarskólinn hafa notið góðs af starfsemi skólans. Veitir klúbburinn verðlaun fyrir bestan árngur í íslensku í Stýrimannaskólanum og fyrir besta ástundun í Tónlistarskólanum.

Heimaeyjargosið varð klúbbnum þungt í skauti. Fyrir gos voru félagar 38 en tíu þeirra sneru ekki aftur. Haldnir voru fimm fundir í Reykjavík en fyrsti fundurinn í Eyjum var haldinn 31. janúar 1974. Þennan tíma var starfið í hálfgerðum molum, en um mitt ár 1974 var það aftur komið í fullan gang.

Ýmsir innlendir klúbbar hafa heimsótt Rótarýklúbb Vestmnanaeyja og félagarnir hafa gert talsvert af því að heimsækja aðra klúbba. Klúbbfélagar hafa þegið boð erlendis frá og þeir hafa einnig tekið á móti Rótarýmönnum frá öðrum löndum, sent út námsfólk og tekið á móti námsfólki erlendis frá. Er öflugt skiptinemakerfi starfrækt innan Rótaryhreyfingarinnar og eru flestir skiptnemarnir, sem til landsins koma, sendir til Eyja til að kynnast hinni fögru náttúru hér.

Rótarýklúbbur Vestmannaeyja hefur átt einn umdæmisstóra, Harald Guðnason, sem var það árin 1964 til 1965. Það fylgir starfi umdæmisstóra að halda umdæmisþing og var 18. umdæmisþing haldið í Vestmannaeyjum 5. til 7. júní 1965. Um 90 manns voru skráðir til þinghaldsins sem var um hvítasunnuhelgi. Esja, skip Ríkissipa, var leigð til að flytja gesti til og frá Eyjum en þingið var haldið í Gagnfræðaskólanum. Fulltrúi forseta Rotary International, Conrad Vogt-Svendson frá Noregi, mælti m.a. svo í ávarpi sínu: „Hvaða umdæmisstóri er það sem hetur haldið umdæmisþing sitt í næsta nágrenni við nýtt land með eldfjalli,“ og átti þá við Surtsey. Hvað hefði hann sagt átta árum síðar? Að lokum má geta þess að fjórir félagar í klúbbnum, Haraldur Guðnason og Valtýr Snæbjörnsson, Jóhann Björnsson og Bragi I. Ólafsson, hafa fengið Paul Harris-orðuna sem er æðsta viðurkenning Alþjóðasamtaka Rótary.

Fyrrverandi forsetar Rótarýklúbbs Vestmannaeyja

1955-56 Baldur Johnsen, héraðslæknir
1956-57 Magnús Bergsson, bakari
1957-58 Jón Eiríksson, skattstjóri
1958-59 Sigurður Finnsson, skólastjóri
1959-60 Sigurður Ólason, forstjóri
1960-61 Haraldur Guðnason, bókavörður
1961-62 Friðþjófur G. Johnsen, hdl
1962-63 Martin Tómasson, forstjóri
1963-64 Jóhann S. Hlíðar, sóknarprestur
1964-65 Stefán Árnason, yfirlögregluþjónn
1965-66 Gunnar Sigurmundsson, prentari
1966-67 Einar H. Eiríksson, skattstjóri
1967-68 Þorsteinn Lúther Jónsson, prestur
1968-69 Páll Þorbjörnsson, skipstjóri
1969-70 Ágúst Helgason, forstjóri
1970-71 Eyjólfur Pálsson, skólastjóri
1971-72 Steingrímur Arnar, yfirverkstjóri
1972-73 Sveinn Guðmundsson, forstjóri
1973-75 Kolbeinn Ólafsson, kaupmaður
1975-76 Stefán Runólfsson, yfirverkstjóri
1976-77 Jóhann Björnsson, forstjóri
1977-78 Magnús Jónason, forstjóri
1978-79 Valtýr Snæbjörnsson, byggingarfulltrúi
1979-80 Kjartan Örn Sigurbjörnsson, sóknarprestur
1980-81 Carl Ólafur Gränz, húsgagnasmiður
1981-82 Einar Steingrímsson, flugumferðarstjóri
1982-83 Friðrik Ásmundsson, skólastjóri
1983-84 Kristján Ólafsson, forstjóri
1984-85 Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri
1985-86 Eyjólfur Martinsson, forstjóri
1986-87 Sigurgeir Kristjánsson, forstjóri
1987-88 Stefán Sigurjónsson, skósmiður
1988-89 Kristján Eggertsson, forstjóri
1989-90 Marinó Sigursteinsson, pípul. maður
1990-91 Bragi Ólafsson, umdæmisstjóri.
1991-92 Trausti Marinósson, kaupmaður
1992-93 Jóhann Björnsson, fyrverandi forstjóri
1993-94 Friðrik Ásmundsson, skólastjóri
1994-95 Ólafur Ólafsson, bæjartæknifræðingur
1995-96 Jón Pétursson, sálfræðingur
1996-97 Stefán Sigurjónsson, skósmiður
1997-98 Hera Ósk Einarsdóttir, félagsmálastjóri
1998-99 Halldóra Magnúsdóttir, skólastjóri
1999-00 Sigurður R. Símonarson, skólamálafulltrúi
2000-01 Bragi Ólafsson, umdæmisstjóri
2004-05 Guðbjörg Karlsdóttir, tryggingasali
2005-06 Bragi Ólafsson
2006-07 Guðný Bogadóttir, hjúkrunarfræðingur

Heimildir

  • Haraldur Guðnason. „Rótarýklúbbur Vestmannaeyja“. Rótarýhreyfingin á Íslandi 50 ára.
  • Rótarýklúbbur Vestmannaeyja. Heimasíða http://www.eyjar.is/rotary/