Karen Tryggvadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. janúar 2021 kl. 16:15 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. janúar 2021 kl. 16:15 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Karen Tryggvadóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Karen Tryggvadóttir húsfreyja fæddist 19. júní 1958.
Foreldrar hennar voru Kristján Tryggvi Jónasson rennismíðameistari, f. 4. október 1929, d. 17. október 2009, og kona hans Jóna Margrét Júlíusdóttir frá Stafholti, húsfreyja, f. 2. febrúar 1927, d. 30. maí 2017.

Börn Jónu Margrétar og Tryggva:
1. Sigurveig Júlía Tryggvadóttir húsfreyja, verkakona, starfsmaður á elliheimili, f. 29. október 1951.
2. Guðrún Karen Tryggvadóttir húsfreyja, f. 19. júní 1958.
Barn Tryggva:
3. Ásgerður Tryggvadóttir svæfingahjúkrunarfræðingur, deildarstjóri svæfingadeildar Borgarspítala, f. 15. desember 1948 í Reykjavík, ógift.

Karen var með foreldrum sínum í æsku, í Steinum við Urðaveg 8 og á Hásteinsvegi 56A.
Hún vann við fiskiðnað og á leiskólunum Rauðagerði og Kirkjugerði, en hefur verið stuðningsfulltrúi í Grunnskólanum frá 1999.
Þau Sigurlás giftu sig 1984, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu um skeið í Svíþjóð, í Garðabæ, en síðar við Smáragötu 3.
Sigurlás lést 2018.

I. Maður Guðrúnar Karenar, (24. nóvember 1984), var Sigurlás Þorleifsson skólastjóri, f. 15. júní 1977, d. 24. apríl 2018.
Börn þeirra:
1. Jóna Heiða Sigurlássdóttir myndlistarmaður, kennari, f. 15. júní 1981. Maður hennar Kevin Sebastian López Chambi frá Perú.
2. Sara Sigurlásdóttir, hefur doktorspróf í örverufræði, er prófessor í Svíþjóð, f. 19. ágúst 1985. Sambúðarmaður Gunnar Steinn Ásgeirsson.
3. Kristín Erna Sigurlásdóttir viðskiptafræðingur, f. 19. ágúst 1991, ógift og barnlaus,.
4. Þorleifur Sigurlásson| verkamaður, tónlistarmaður, f. 28. október 1992, ókvæntur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.