Sara Sigurlásdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sara Sigurlásdóttir, húsfreyja, með doktorspróf í örverufræði, er prófessor í Svíþjóð, f. 19. ágúst 1985.
Foreldrar hennar Sigurlás Þorleifsson, skólastjóri, f. 15. júní 1957, d. 24. apríl 2018, og kona hans Guðrún Karen Tryggvadóttir, húsfreyja, f. 19. júní 1958.

Börn Karenar og Sigurláss:
1. Jóna Heiða Sigurlásdóttir myndlistarmaður, kennari, f. 15. júní 1981. Maður hennar Kevin Sebastian López Chambi frá Perú.
2. Sara Sigurlásdóttir, hefur doktorspróf í örverufræði, er prófessor í Svíþjóð, f. 19. ágúst 1985. Sambúðarmaður Gunnar Steinn Ásgeirsson.
3. Kristín Erna Sigurlásdóttir viðskiptafræðingur, f. 19. ágúst 1991, ógift og barnlaus,.
4. Þorleifur Sigurlásson verkamaður, tónlistarmaður, f. 28. október 1992, ókvæntur.

Þau Gunnar Steinn hófu sambúð, hafa eignast tvö börn.

I. Sambúðarmaður Söru er Gunnar Steinn Ásgeirsson, verkfræðingur, f. 31. janúar 1986. Foreldrar hans Ásgeir Haraldsson, f. 20. maí 1956, og Hildigunnur Hansína Gunnarsdóttir, f. 18. apríl 1957.
Börn þeirra:
1. Nikulás Gunnarsson, f. 1. nóvember 2021.
2. Elísa Gunnarsdóttir, f. 7. mars 2023.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.