Einar Jónsson (London)
Einar Jónsson sjómaður frá Káragerði í V-Landeyjum fæddist 12. júní 1863 og lést 27. nóvember 1941.
Foreldrar hans voru Jón Einarsson bóndi í Káragerði, f. 20. desember 1834, dukknaði við Eyjar 25. mars 1893 og kona hans Ástríður Pétursdóttir húsfreyja, síðar í Merkisteini, f. 11. júlí 1835, d. 5. ágúst 1919.
Einar var bróðir
1. Guðrúnar Jónsdóttur húsfreyju í Merkisteini, f. 11. janúar 1866, d. 5. júní 1954, konu Sigurðar Ísleifssonar.
2. Sigríðar Jónsdóttur í Merkisteini, síðar í Reykjavík, f. 20. júní 1878, d. 14. júlí 1969.
3. Guðríðar Jónsdóttur húsfreyju á Heiði, f. 6. júlí 1871, d. 1. júní 1944, síðari konu Sigurðar Sigurfinnssonar.
Einar stundaði sjóróðra í Eyjum frá 1893, var til heimilis í London við fæðingu Gíslínu 1900. Hann fluttist til Eyja frá Káragerði 1901, var í Merkisteini 1910, leigjandi hjá Jónínu Guðmundsdóttur ekkju í Langholti 1920, ókvæntur ellilífeyrisþegi á Heiði 1930, ,,þurfalingur‘‘ í Byggðarholti 1940.
Einar lést 1941.
Barnsmóðir Einars var Helga Guðmundsdóttir húsfreyja, ljósmóðir, þá ekkja í Nöjsomhed, f. 24. júní 1863, d. 18. mars 1931.
Barn þeirra var
1. Gíslína Sigríður Helga Einarsdóttir húsfreyja í Stafholti, f. 18. ágúst 1900, d. 12. ágúst 1967, síðari kona Júlíusar Jónssonar múrarameistara.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.