Guðlaug Magnúsdóttir (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. desember 2014 kl. 21:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. desember 2014 kl. 21:29 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaug Magnúsdóttir vinnukona á Vilborgarstöðum fæddist 30. desember 1825 í Ásgarði í Landbroti og lést 8. maí 1916.
Foreldrar hennar voru Magnús Sigurðsson bóndi þar, síðast á Vilborgarstöðum, f. 1775, d. 8. ágúst 1846, og síðari kona hans Þorgerður Jónsdóttir húsfreyja, f. 1787, d. 4. mars 1840.

Bróðir Guðlaugar var Jón Magnússon bóndi á Vilborgarstöðum, f. 23. maí 1811, d. 3. apríl 1860.
Föðurbróðir Guðlaugar var Einar Sigurðsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1769, d. 18. mars 1852. Börn hans voru m.a.
1. Sigurður Einarsson klénsmiður, (þ.e. málmsmiður), sjávarbóndi á Kirkjubæ, f. 10. júní 1806.
2. Kristín Einarsdóttir húsfreyja í Nýjabæ, f. 5. nóvember 1817, d. 6. október 1899.
3. Árni Einarsson bóndi, hreppstjóri og alþingismaður, f. 12. júní 1824, d. 19. febrúar 1899.

Guðlaug fluttist til Eyja 1841, 16 ára með föður sínum.
Hún var vinnukona hjá Jóni bróður sínum 1845 og enn 1950. Við fæðingu Magnúsar 1955 var hún 29 ára vinnukona á Ofanleiti og þar var Runólfur Eiríksson 27 ára vinnumaður, var á Vesturhúsum við fæðingu Guðrúnar 1858. 1860 var hún vinnukona í Draumbæ með son sinn Runólf Runólfsson á fyrsta ári með sér. 1862 bjuggu þau Runólfur í Dölum, húsfólk með Magnús og Runólf hjá sér. Hún var vinnukona á Vesturhúsum 1863-1865 með Runólf yngri hjá sér, í Götu með hann 1866, þar án hans 1867. Þá var hann niðursetningur á Vesturhúsum.
Guðlaug missti Runólf barnsföður sinn og Magnús son sinn í sjóinn á því ári. Hún var enn í Götu 1868 og 1869, en 1870 var hún vinnukona í Norðurgarði. Við manntal 1880 var hún lausakona í Stóra-Gerði, „lifir á erfiði“.
Runólfur sonur hennar lést af slysförum í Mjóafirði eystra 1888.
Guðlaug var húskona í Stakkagerði 1890, 75 ára niðursetningur í London 1901 og í Vatnsdal 1910 og var þar „á sveit “ við andlát 1916, 90 ára.

Barnsfaðir Guðlaugar að þrem börnum var Runólfur Eiríksson vinnumaður, sjómaður á þilskipinu Helgu, f. 19. ágúst 1828, drukknaði í apríl 1867.
Börn þeirra hér:
1. Magnús Runólfsson, f. 13. maí 1855, fórst með Helgu 1867.
2. Guðrún Runólfsdóttir, f. 22. maí 1858, d. 4. júní 1858 úr ginklofa.
3. Runólfur Runólfsson, f. 28. júní 1860, hrapaði til bana 22. janúar 1888.


Heimildir