Hrefna Óskarsdóttir (Hólnum)
Hrefna Óskarsdóttir, húsfreyja, verkakona fæddist 30. apríl 1951.
Foreldrar hennar voru Óskar Ólafsson frá Vestari-Torfastöðum í Fljótshlíð, pípulagningameistari, f. 15. ágúst 1905, d. 23. janúar 1986, og kona hans Kristín Jónsdóttir frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði, húsfreyja, f. þar 9. nóvember 1911, d. 1. nóvember 1992.
Börn Kristínar og Óskars:
1. Adolf Óskarsson pípulagningamaður, afreksmaður í íþróttum, f. 30. nóvember 1928 á Hólnum við Landagötu 18, síðast í Hafnarfirði, d. 15. desember 2008. Kona hans Ásta Vigfúsdóttir.
2. Jóna Guðlaug Óskarsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 16. febrúar 1930 á Hólnum við Landagötu 18, d. 15. ágúst 2006. Maður hennar Kristleifur Magnússon.
3. Aðalheiður Óskarsdóttir húsfreyja, f. 8. nóvember 1934 á Grímsstöðum. Maður hennar Þorleifur Sigurlásson.
4. Guðmunda Eygló Óskarsdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1937 á Hólnum við Landagötu 18. Maður hennar Svavar Steingrímsson.
5. Kristín Ósk Óskarsdóttir húsfreyja, f. 14. október 1940 á Hólnum. Maður hennar Friðbjörn Kristjánsson.
6. Ólafur Óskarsson pípulagningamaður, f. 27. maí 1944 á Hólnum, d. 9. ágúst 1986. Kona hans Harpa Njálsdóttir Andersen.
7. Albína Elísa Óskarsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, glerlistarkona, f. 25. júní 1945 á Hólnum, d. 29. júní 2008. Maður Huginn Sveinbjörnsson.
8. Hrefna Óskarsdóttir húsfreyja, f. 30. apríl 1951 á Sj.h. Maður hennar Kristján Ingólfsson.
9. Örn Óskarsson pípulagningameistari í Reykjavík, f. 18. febrúar 1953 að Boðaslóð 27. Kona Hulda Kjærnested.
10. Guðrún Óskarsdóttir húsfreyja, f. 12. nóvember 1957 að Boðaslóð 27. Maður hennar Almar Hjarðar.
Þau Kristján giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Hólagötu 27, síðan í Rvk.
I. Maður Hrefnu er Kristján Ingólfsson, stálsmiður, síðar áfengis- og vímuefnaráðgjafi, f. 29. nóvember 1950.
Börn þeirra:
1. Kristrín Kristjánsdóttir, f. 30. júní 1968 í Eyjum.
2. Ingólfur Kristjánsson, f. 8. febrúar 1972 í Eyjum.
3. Eygló Svava Kristjánsdóttir, f. 22. apríl 1977, d. 27. mars 2020.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Kristján.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.