Gerður Garðarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. september 2024 kl. 11:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. september 2024 kl. 11:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Gerður Garðarsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Gerður Garðarsdóttir, húsfreyja, starfsmaður í mötuneyti Leo seafood í Eyjum, nú starfsmaður í mötuneyti RÚV í Rvk, fæddist 21. maí 1963.
Foreldrar hennar voru Sigurður Garðar Ásbjörnsson sjómaður, vélstjóri, útgerðarstjóri, f. 27. mars 1932, d. 7. maí 2012, og kona hans Ásta Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1933, d. 9. mars 2022.

Börn Ástu og Garðars:
1. Daði Garðarsson, f. 14. desember 1954. Kona hans Magnea Ósk Magnúsdóttir.
2. Ásbjörn Garðarsson, f. 31. mars 1956.
3. Gylfi Garðarsson, f. 5. ágúst 1957. Fyrrum kona hans Elísa Harpa Grytvik.
4. Sigmar Einar Garðarsson, f. 19. september 1959. Kona hans Ragna Garðarsdóttir.
5. Lilja Garðarsdóttir, f. 11. febrúar 1961. Maður hennar Magnús Gísli Magnússon.
6. Gerður Garðarsdóttir, f. 21. maí 1963. Maður hennar Eyjólfur Heiðar Heiðmundsson.
7. Ásta Garðarsdóttir, f. 12. maí 1965, d. 27. mars 1999. Maður hennar Karl Björnsson.
Sonur Ástu og fóstursonur Garðars:
8. Sigurður Kristinn Ragnarsson Runólfssonar, f. 29. desember 1951. Kona hans Halldóra Ingibjörg Ingólfsdóttir, látin. Kona hans Margrét Elín Ragnheiðardóttir.

Þau Eyjólfur Heiðar giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau hafa búið í Baldurshaga við Vesturveg 5, en eru nýflutt til Rvk.

I. Maður Gerðar er Eyjólfur Heiðar Heiðmundsson, verslunarmaður, f. 14. maí 1959.
Börn þeirra:
1. Garðar Heiðar Eyjólfsson, f. 4. ágúst 1984 í Eyjum.
2. Guðrún Lena Eyjólfsdóttir, f. 11. júní 1986 í Eyjum.
3. Selma Eyjólfsdóttir, f. 21. nóvember 1994 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.