Klara Bergsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júní 2024 kl. 10:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júní 2024 kl. 10:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Margrét Klara Bergsdóttir.

Margrét Klara Bergsdóttir frá Hörgsholti við Skólaveg 10, húsfreyja, verslunar- og skrifstofumaður fæddist þar 13. ágúst 1941 og lést 22. júní 2011 á Heilbrigðisstofnuninni.
Foreldrar hennar voru Bergur Elías Guðjónsson útgerðarmaður, verkstjóri, f. 10. júní 1913, d. 7. júní 2003, og kona hans Guðrún Ágústsdóttir, húsfreyja, verkakona, f. 29. janúar 1916, d. 30. mars 2013.

Börn Guðrúnar og Bergs Elíasar:
1. Ágúst Bergsson skipstjóri, f. 19. september 1937. Kona hans Stefanía Guðmundsdóttir.
2. Margrét Klara Bergsdóttir húsfreyja, verslunar- og skrifstofumaður, f. 13. ágúst 1941, d. 22. júní 2011. Maður hennar Birgir Símonarson.
3. Kristín Bergsdóttir húsfreyja, f. 8. desember 1945. Maður hennar Kristmann Karlsson.

Klara var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1958 og nam við Húsmæðraskólann á Laugalandi.
Klara vann um skeið á hóteli í Danmörku og Englandi.
Hún vann verslunar- og skrifstofustörf í rúm 20 ár hjá Karli Kristmanns umboðs- og heildverslun og mörg ár hjá E.P. innréttingum í bókhaldi.
Hún var um langt skeið félagi í Kvenfélaginu Líkn, var gjaldkeri og formaður um skeið.
Þau Birgir giftu sig 1963, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Hrauntúni 4.
Margrét Klara lést 2011.

I. Maður Klöru, (28. desember 1963), er Birgir Símonarson bifvélavirki, f. 16. september 1940 í Garðhúsum.
Börn þeirra:
1. Elva Björk Birgisdóttir húsfreyja, fyrrverandi bóndi í Hlíð u. Eyjafjöllum, f. 17. september 1963. Fyrrum maður hennar Sigurgeir Líndal Ingólfsson.
2. Jóhanna Birgisdóttir húsfreyja, hárgreiðslumeistari, f. 26. febrúar 1968. Fyrrum maður hennar Rafn Kristjánsson. Maður hennar Friðrik Sæbjörnsson.
3. Rúnar Þór Birgisson netagerðarmeistari, f. 1. október 1970. Kona hans Íris Pálsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.