Jóhanna Birgisdóttir (Hrauntúni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Birgisdóttir frá Hrauntúni 4, húsfreyja, hárgreiðslumeistari fæddist 26. febrúar 1968 í Eyjum.
Foreldrar hennar Birgir Símonarson frá Garðhúsum við Kirkjuveg 14, bifvélavirki, f. 16. september 1940, og kona hans Margrét Klara Bergsdóttir frá Hörgsholti við Skólaveg 10, húsfreyja, verslunar- og skrifstofumaður, f. 13. ágúst 1941, d. 22. júní 2011.

Börn Klöru og Birgis:
1. Elva Björk Birgisdóttir húsfreyja, fyrrverandi bóndi í Hlíð u. Eyjafjöllum, f. 17. september 1963. Fyrrum maður hennar Sigurgeir Líndal Ingólfsson.
2. Jóhanna Birgisdóttir húsfreyja, hárgreiðslumeistari, f. 26. febrúar 1968. Fyrrum maður hennar Rafn Kristjánsson. Maður hennar Friðrik Örn Sæbjörnsson.
3. Rúnar Þór Birgisson netagerðarmeistari, f. 1. október 1970. Kona hans Íris Pálsdóttir.

Jóhanna var með foreldrum sínum.
Hún lærði hárgreiðslu og öðlaðist meistararéttindi.
Jóhanna vann við iðn sína.
Þau Rafn giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau skildu. Þau Friðrik giftu sig 2013, eignuðust ekki börn saman. Þau búa við Brimhólabraut.
Jóhanna bjó við Hvítingaveg, nú á Brimhólabraut.

I. Maður Jóhönnu, skildu, er Rafn Kristjánsson, bifreiðastjóri, f. 1. október 1966 í Rvk. Foreldrar hans Kristján Sigurður Rafnsson, bifreiðastjóri, f. 9. júlí 1948, d. 3. september 1996, og kona hans Árný Kristbjörg Árnadóttir frá Þórshöfn á Langanesi, húsfreyja, f. 19. júlí 1948.
Börn þeirra:
1. Margrét Rut Rafnsdóttir, framhaldsskólakennari, f. 24. maí 1990 í Rvk. Sambúðarmaður hennar Runi Möller Petersen, danskrar ættar.
2. Jóhann Rafn Rafnsson, vélstjóri, rafvirki, vélorkutæknifræðingur, f. 5. mars 1993.
3. Kristján Róbert Rafnsson, húsasmíðameistari, f. 17. janúar 1997. Sambúðarkona hans Bára Steinsdóttir úr Rvk.
4. Birgir Reimar Rafnsson, verkamaður, f. 25. mars 1998.

II. Maður Jóhönnu, (28. desember 2013), er Friðrik Örn Sæbjörnsson, f. 5. apríl 1967.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.