Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. desember 2006 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. desember 2006 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir frá Háagarði, síðar að Goðasteini, en síðast að Kirkjubæjabraut 17; búsett í Rvk; húsmóðir, bankastarfsmaður, fædd að Þingeyri við Skólaveg 27. maí 1930.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Þ. Víglundsson, f. 1899 og k.h. Ingigerður Jóhannsdóttir, f. 1902.

Maki (26. júlí 1952): Sigfús Jörundur Árnason Johnsen, f. 1930, d. 2. nóv. 2006.
Börn þeirra: Þorsteinn Ingi prófessor, f. 1954, Árni bæjarstjóri, f. 1956, Gylfi framkvæmdastjóri, f. 1961, Margrét innanhússarkitekt, f. 1963, Þór forstjóri, f. 1964, Sif mannauðsfræðingur, f. 1967.

Lífsferill

Kristín gekk í Gagnfræðaskólann, var afgreiðslukona í Bjarma (þá vefnaðarvöruverzlun Helga Benediktssonar) og síðar talsímakona við Símstöðina í Vestmannaeyjum. Hún gekk í Húsmæðraskólann í Rvk 1950-51, rak stórt heimili, vann hjá Sparisjóði Vestmannaeyja í Seðlabankanum í Landsbankahúsinu gostímann 1973-74, starfsmaður Landsbankans 1974-99.



Heimildir