Kristín Magnúsdóttir (Árbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. mars 2019 kl. 12:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. mars 2019 kl. 12:04 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Magnúsdóttir frá Árbæ, húsfreyja fæddist 25. mars 1930 á Svalbarði og lést 24. október 1994.
Foreldrar hennar voru Kristinn Magnús Kristjánsson verkamaður, sjómaður, matsveinn, heilbrigðisfulltrúi, f. 7. ágúst 1904 á Bergstöðum, d. 25. nóvember 1962, og kona hans Jónína Ágústa Þórðardóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1902 á Stokkseyri, d. 2. janúar 1992 í Keflavík.

Börn Jónínu Ágústu og Magnúsar Kristjáns:
1. Kristín Magnúsdóttir, tvíburi, f. 25. mars 1930 í Eyjum, d. 24. október 1994.
2. Þórunn Magnúsdóttir, tvíburi, húsfreyja, verkakona í Neskaupstað, f. 25. mars 1930 í Eyjum, d. 15. febrúar 2013.
3. Margrét Ólafía Magnúsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 8. janúar 1932 í Eyjum, d. 1. mars 2007.
4. Guðni Reykdal Magnússon verkstjóri, umsjónarmaður, f. 28. mars 1935 í Eyjum.
Kjörbarn þeirra, sonur Þórunnar dóttur þeirra, er
5. Magnús Þór Magnússon í Garði, Gull., f. 15. janúar 1947 í Eyjum.

Kristín var með foreldrum sínum í æsku.
Hún eignaðist Jónínu Lilju utan Eyja með Aðalsteini 1950, giftist Ólafi 1954 og bjó með honum í Árbæ við fæðingu Kjartans 1954. Þau skildu.
Hún giftist Aðalsteini, eignaðist með honum fjögur börn.
Aðalsteinn lést 1974. Jóhanna Ósk og Aðalsteina Lára fóru í fóstur til Þórunnar systur Kristínar. Kristín Unnur var fóstruð um skeið hjá Margréti systur hennar og Matthíasi Ingibergssyni frá Sandfelli. Kristín bjó síðast í Dúfnahólum 4 í Reykjavík.
Hún lést 1994.

Kristín var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (25. desember 1954, skildu), var Ólafur Þ. Jónsson verkamaður, sjómaður, vitavörður, f. 14. júní 1934.
Börn þeirra:
1. Kjartan Ólafsson bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 5. október 1954 í Eyjum. Kona hans er Hrefna Harðardóttir.
2. Ingibjörg María Ólafsdóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1960. Maður hennar er Sveinn Heiðar Zóphoníasson.

II. Síðari maður Kristínar var Aðalsteinn Lárusson sjómaður, verkamaður, f. 27. febrúar 1920, d. 14. mars 1974. Foreldrar hans voru Lárus Hansson innheimtumaður, f. 16. desember 1891 á Steindórsstöðum í Borg., d. 14. mars 1958, og kona hans Jónína Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 30. nóvember 1885 á Stóru-Vatnsleysu í Gull., d. 12. janúar 1943.
Börn þeirra:
3. Jónína Lilja Aðalsteinsdóttir húsfreyja, býr í Danmörku, f. 27. október 1950. Maður hennar er Ole Håkan.
4. Jóhanna Ósk Aðalsteinsdóttir húsfreyja, f. 15. október 1965. Hún býr á Spáni.
5. Aðalsteina Lára Aðalsteinsdóttir húsfreyja, fráskilin, f. 11. mars 1967.
6. Kristín Unnur Aðalsteinsdóttir, f. 22. apríl 1968.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.