„Sigríður Sighvatsdóttir (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 5: | Lína 5: | ||
Þau höfðu eignast þrjú börn, sem voru hjá móður sinni á Kirkjubæ 1901, auk Júlíönu:
| Þau höfðu eignast þrjú börn, sem voru hjá móður sinni á Kirkjubæ 1901, auk Júlíönu:

1. [[Loftur Jónsson|Kristján ''Loftur'' Jónsson]], f. 13. júlí 1891, d. 2. maí 1981. Hann ólst upp hjá hjónunum í [[Háigarður|Háagarði]], [[Þorsteinn Ólafsson (Háagarði)|Þorsteini Ólafssyni]] og [[Ingibjörg Hjörleifsdóttir (Háagarði)|Ingibjörgu Hjörleifsdóttur]].
| 1. [[Loftur Jónsson|Kristján ''Loftur'' Jónsson]], f. 13. júlí 1891, d. 2. maí 1981. Hann ólst upp hjá hjónunum í [[Háigarður|Háagarði]], [[Þorsteinn Ólafsson (Háagarði)|Þorsteini Ólafssyni]] og [[Ingibjörg Hjörleifsdóttir (Háagarði)|Ingibjörgu Hjörleifsdóttur]].

2. [[Kjartan Jónsson ( | 2. [[Kjartan Jónsson (Búastöðum)|Kjartan Jónsson]], síðar bókbindari á [[Búastaðir|Búastöðum]], f. 3. desember 1896, d. 3. desember 1940. Hann var í [[Framnes]]i og á [[Búastaðir|Búastöðum]].

3. [[Sigurður Björgvin Jónsson (Kirkjubæ)|Sigurður Björgvin Jónsson]], f. 28. maí 1899, d. 30. janúar 1914. Hann var niðursetningur í [[Gvendarhús]]i 1910.
| 3. [[Sigurður Björgvin Jónsson (Kirkjubæ)|Sigurður Björgvin Jónsson]], f. 28. maí 1899, d. 30. janúar 1914. Hann var niðursetningur í [[Gvendarhús]]i 1910.

4. Barn Sigríðar: [[Júlíana Sigurðardóttir (Búastöðum)|Júlíana Guðríður Ingveldur Sigurðardóttir]].
| 4. Barn Sigríðar: [[Júlíana Sigurðardóttir (Búastöðum)|Júlíana Guðríður Ingveldur Sigurðardóttir]].

Útgáfa síðunnar 20. ágúst 2013 kl. 12:23
Sigríður Sighvatsdóttir frá Vilborgarstöðum, húsfreyja á Vestri-Staðarbæ á Kirkjubæ fæddist 1864 og lést 12. september 1902.
Foreldrar hennar voru Sighvatur Sigurðsson bóndi og formaður á Vilborgarstöðum, f. 10. júlí 1835, d. 8. júlí 1874 og kona hans Björg Árnadóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1830, d. 4. júní 1915.
Sigríður var vinnukona hjá Sigurði Sveinssyni snikkara í Nýborg á níunda áratug 19. aldar og gerði hann henni barn. Var það Júlíana Guðríður Ingveldur Sigurðardóttir, síðar húsfreyja á Búastöðum, f. 19. júlí 1886, d. 28. október 1976.
Sigríður giftist Jóni Eyjólfssyni frá Hlíð undir Eyjafjöllum, bónda á Kirkjubæ, f. 1862. Hún missti hann í sjóinn 20. maí 1901, er julið Sjólyst fórst í Álnum suður af Bjarnarey.
Þau höfðu eignast þrjú börn, sem voru hjá móður sinni á Kirkjubæ 1901, auk Júlíönu:
1. Kristján Loftur Jónsson, f. 13. júlí 1891, d. 2. maí 1981. Hann ólst upp hjá hjónunum í Háagarði, Þorsteini Ólafssyni og Ingibjörgu Hjörleifsdóttur.
2. Kjartan Jónsson, síðar bókbindari á Búastöðum, f. 3. desember 1896, d. 3. desember 1940. Hann var í Framnesi og á Búastöðum.
3. Sigurður Björgvin Jónsson, f. 28. maí 1899, d. 30. janúar 1914. Hann var niðursetningur í Gvendarhúsi 1910.
4. Barn Sigríðar: Júlíana Guðríður Ingveldur Sigurðardóttir.
Sigríður var með ekkjunni móður sinni 1890. Hún var húsfreyja og ekkja á Kirkjubæ 1901 með 4 börn sín hjá sér.
Hún missti heilsuna og varð að koma börnunum fyrir. Hún lést 1902.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðjón Ármann Eyjólfsson og Eyjólfur Gíslason: Loftur Jónsson. Minningargrein í Morgunblaðinu 9. maí 1981.
- Blik 1960, Nýborgarheimilið, II. hluti.
- Páll Oddgeirsson. Minningarrit 1952.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.