„Arnbjörn Ögmundsson (Presthúsum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Arnbjörn Ögmundsson''' útvegsbóndi og landverkamaður fæddist 5. apríl 1853 í Reynisholti í Mýrdal og lést 1. júní 1941 í Eyjum.
Foreldrar hans voru [[Ögmundur Árna...)

Ekkert breytingarágrip
Lína 10: Lína 10:
1. [[Bergmundur Arnbjörnsson (Nýborg)|Bergmundur Arnbjörnsson]] í [[Nýborg]], f. 17. október 1883, d. 28. nóvember 1952.

1. [[Bergmundur Arnbjörnsson (Nýborg)|Bergmundur Arnbjörnsson]] í [[Nýborg]], f. 17. október 1883, d. 28. nóvember 1952.

2. [[Þorbjörn Arnbjörnsson|Þorbjörn Arnbjörnsson]] á [[Reynifell]]i, f. 8. október 1886, d. 10. nóvember 1965.

2. [[Þorbjörn Arnbjörnsson|Þorbjörn Arnbjörnsson]] á [[Reynifell]]i, f. 8. október 1886, d. 10. nóvember 1965.

3. [[Ágústa Arnbjörnsdóttir|Ágústa Arnbjörnsdóttir]] húsfreyju í [[Hvíld við Faxastíg]], kona [[Kristinn Jónsson (Tanganum)|Kristins Jónssonar]] á [[Tanginn|Tanganum]], fædd 11. ágúst 1899, d. 24. maí 1989. og

3. [[Ágústa Arnbjörnsdóttir|Ágústa Arnbjörnsdóttir]] húsfreyju í [[Hvíld við Faxastíg]], kona [[Kristinn Jónsson (Tanganum)|Kristins Jónssonar]] á [[Tanginn|Tanganum]], fædd 11. ágúst 1899, d. 24. maí 1989.

4. [[Guðbjörg Arnbjörnsdóttir]], f. 22. desember 1891, d. 18. maí 1944.

4. [[Guðbjörg Arnbjörnsdóttir]], f. 22. desember 1891, d. 18. maí 1944.

{{Heimildir|
{{Heimildir|

Útgáfa síðunnar 7. maí 2013 kl. 11:48

Arnbjörn Ögmundsson útvegsbóndi og landverkamaður fæddist 5. apríl 1853 í Reynisholti í Mýrdal og lést 1. júní 1941 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Ögmundur Árnason bóndi í Reynisholti, síðar í Eyjum, f. 10. október 1809, d. 10. janúar 1888 í Eyjum, og kona hans Þóra Jónsdóttir húsfreyja í Reynisholti, f. 1814, d. 14. apríl 1860 í Reynisholti. Arnbjörn var með foreldrum sínum í Reynisholti til ársins 1860, er móðir hans lést, síðan var hann þar með föður sínum 1860-1861, með honum í Reynishólum í Mýrdal 1861-1862, á Reyni þar 1862-1864, í Hraungerði þar 1864-1869. Hann var vinnudrengur í Klausturhjáleigu (Norðurhjáleigu) í Álftaveri 1869-1870, vinnumaður á Reyni 1870-1871, á Herjólfsstöðum í Álftaveri 1871-1873.
Hann fluttist til Eyja 1872/3, var sjómaður þar 1880, kvæntist Elísabetu 1883, var kvæntur vinnumaður í Jómsborg 1890.
Arnbjörn var útvegsbóndi í Eyjum 1901, kvæntur bóndi og útvegsmaður í Presthúsum 1910, kvæntur landverkamaður í Hvíld 1920 og framvegis.
Þau Elísabet skiptu bústöðum við hjónin í Hvíld, Kára Sigurðsson og Þórunni Pálsdóttur á öðrum áratug aldarinnar.

Kona Arnbjarnar var Elísabet Bergsdóttir húsfreyja frá Vilborgarstöðum, f. 1857, d. 6. júlí 1928.
Börn Arnbjörns og Elísabetar voru:
1. Bergmundur Arnbjörnsson í Nýborg, f. 17. október 1883, d. 28. nóvember 1952.
2. Þorbjörn Arnbjörnsson á Reynifelli, f. 8. október 1886, d. 10. nóvember 1965.
3. Ágústa Arnbjörnsdóttir húsfreyju í Hvíld við Faxastíg, kona Kristins Jónssonar á Tanganum, fædd 11. ágúst 1899, d. 24. maí 1989.
4. Guðbjörg Arnbjörnsdóttir, f. 22. desember 1891, d. 18. maí 1944.

Heimildir