„Katrín Gísladóttir (veitingamaður)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Katrín Gísladóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 15. júlí 2024 kl. 10:37

Katrín Gísladóttir, húsfreyja, veitingamaður, rekur fyirtækið ,,Slippurinn“, fæddist 1. mars 1960.
Foreldrar hennar voru Gísli Matthías Sigmarsson sjómaður, matsveinn, vélstjóri, skipstjóri, f. 9. október 1937, d. 6. júní 2020, og kona hans Sjöfn Kolbrún Benónýsdóttir húsfreyja, f. 15. apríl 1937.

Börn Sjafnar og Gísla:
1. Sigmar Gíslason skipstjóri, f. 27. desember 1957 í Eyjum. Kona hans Ásta Kristmannsdóttir.
2. Katrín Gísladóttir veitingamaður, rekur fyrirtækið ,,Slippurinn“, f. 1. mars 1960. Maður hennar Auðunn Stefnisson frá Siglufirði.
3. Benóný Gíslason sjómaður, vaktmaður, tækjamaður, f. 27. júlí 1962. Kona hans Jóna Helgadóttir.
4. Grímur Þór Gíslason veitingamaður, rekur fyrirtækið ,,Grímur kokkur“, f. 22. desember 1964. Kona hans Ásta María Ástvaldsdóttir.
5. Gísli Matthías Gíslason, sjómaður, þyrluflugmaður, f. 15. maí 1973. Kona hans Jóna Kristjánsdóttir.
6. Sigurður Friðrik Gíslason veitingamaður, rekur fyrirtækið ,,Gott“, f. 2. mars 1975. Kona hans Berglind Sigmarsdóttir.
7. Frosti Gíslason iðntæknifræðingur, verkefnastjóri, f. 13. desember 1977. Kona hans Ingibjörg Grétarsdóttir.
Fósturbarn frá 14 ára aldri:
8. Sigmar Þór Sveinbjörnsson sjómaður, vélstjóri, stýrimaður, umdæmisstjóri hjá Siglingastofnun Íslands, f. 23. maí 1946. Kona hans Kolbrún Ósk Óskarsdóttir.

Þau Auðunn Arnar giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau hafa búið við Brekastíg, Hólagötu, Hátún, búa nú við Kirkjuveg 53.

I. Maður Katrínar er Auðunn Arnar Stefnisson, frá Siglufirði, útgerðarmaður, sjómaður, trillukarl, f. 30. september 1956.
Börn þeirra:
1. Kolbrún Indíana Auðunsdóttir, f. 5. febrúar 1980 í Eyjum.
2. Katrín Eva Auðunsdóttir, f. 1. mars 1983 í Eyjum.
3. Rakel Stefý Auðunsdóttir, f. 3. ágúst 1985 í Eyjum.
4. Gísli Matthías Auðunsson, f. 25. mars 1989 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.