„María Gísladóttir (Burstafelli)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 19: Lína 19:
I. Maður Maríu, (22. febrúar 1942), var  [[Vilhjálmur Árnason (Burstafelli)|Vilhjálmur Árnason]], f. 19. febrúar 1921, d. 19. febrúar 1993.

I. Maður Maríu, (22. febrúar 1942), var  [[Vilhjálmur Árnason (Burstafelli)|Vilhjálmur Árnason]], f. 19. febrúar 1921, d. 19. febrúar 1993.

Börn þeirra:

Börn þeirra:

1. [[Óli Árni Vilhjálmsson|Óli Árni Vilhjálmsson]], f. 18. október 1941, d. 24. desember 2021.

1. [[Óli Árni Vilhjálmsson (Burstafelli)|Óli Árni Vilhjálmsson]], f. 18. október 1941, d. 24. desember 2021.

2. [[Þór Ísfeld Árnason|Þór Ísfeld Vilhjálmsson]], f. 30. nóvember 1945.

2. [[Þór Ísfeld Árnason|Þór Ísfeld Vilhjálmsson]], f. 30. nóvember 1945.

3. [[Sæmundur Vilhjálmsson|Sæmundur Vilhjálmsson]], f. 7. desember 1948.

3. [[Sæmundur Vilhjálmsson (Burstafelli)|Sæmundur Vilhjálmsson]], f. 7. desember 1948.

4. [[Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir|Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir]], f. 2. nóvember 1956.

4. [[Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir (Burstafelli)|Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir]], f. 2. nóvember 1956.

5. [[Vilhjálmur Vilhjálmsson|Vilhjálmur Vilhjálmsson]], f. 5. mars 1963.
5. [[Vilhjálmur Vilhjálmsson (Burstafelli)|Vilhjálmur Vilhjálmsson]], f. 5. mars 1963.

== Myndir ==
== Myndir ==

Útgáfa síðunnar 7. desember 2022 kl. 09:52

María Gísladóttir (Maja á Burstafelli) húsfreyja á Burstafelli, fæddist 6. marz 1923 í Neskaupstað, d. 11. janúar 2016.

Ætt og uppruni

María með son sinn Árna Óla Vilhjálmsson.

Faðir hennar var Gísli verkamaður í Neskaupstað, f. 11. febr. 1889 á Reykjum í Mjóafirði eystra, d. 19. júlí 1955 í Neskaupstað, Jóhannssonar bónda og sjómanns á Krossi þar, f. 21. september 1860 í Sandvík í Skorrastaðarsókn, d. 3. maí 1924 á Eskifirði, Marteinssonar bónda og formanns í Sandvík, f. 13. september 1824 í Sandvík, d. 12. maí 1861, Magnússonar, og bústýru Marteins, Dagbjartar, f. 14. apríl í Keldudal í Hegranesi í Skagaf., d. 13. mars 1904, Eyjólfsdóttur.
Móðir Gísla og kona Jóhanns Marteinssonar var Katrín húsfreyja á Krossi, f. 2. október 1862 á Krossi, d. 30. október 1950 í Goðasteini, Gísladóttir bónda á Reykjum í Mjóafirði, f. 20. mars 1832 í Karlsskála við Reyðarfjörð, d. 5. mars 1904 á Reykjum í Mjóafirði, Eyjólfssonar, og konu Gísla, Halldóru húsfreyju og ljósmóður, f. 27. júlí 1837 í Hólmasókn í Reyðarfirði, d. 3. janúar 1927 í Neskaupstað, Eyjólfsdóttur.
Sambýliskona og síðar (31. október 1926) kona Gísla og móðir Maríu var Þórunn Ólafía Ísfeld húsfreyja, f. 11. des. 1892, d. 2. febr. 1932, Karls bónda að Miðhúsum og Krossi í Mjóafirði eystri, f. 7. okt. 1870, d. 26. okt. 1964, Guðmundssonar og fyrri konu (6. nóv. 1892) Karls, Júlíu (einnig Júníu) Johannsen húsfreyju, f. í Færeyjum 1872, d. í Mjóafirði 13. maí 1898.

Ættbogi í Eyjum

Bróðir Maríu var Páll Ólafur Gíslason bifreiðastjóri, f. 3. marz 1922, d. 25. marz 2002, kvæntur Báru Sigurðardóttur frá Bólstað, f. 1925. Föðursystir þeirra Maríu og Páls var Ingigerður Jóhannsdóttir í Goðasteini, f. 6. sept. 1902. Börn Ingigerðar, Páll og María Gíslabörn, Anna Pálína Sigurðardóttir, f. 1920, kona Guðlaugs Guðjónssonar frá Oddsstöðum og Inga Jóhanna, f. 1927, kona Hjörleifs Guðnasonar múrarameistara frá Oddsstöðum, voru systkinabörn. (Sjá Katrínu Gísladóttur)

Lífsferill

María ólst upp í Neskaupstað. Til Eyja fluttist hún 1940. Eftir stofnun heimilis annaðist hún það og börnin framan af starfsævi sinni.
Þau Vilhjálmur keyptu Fatahreinsunina StraumSkólavegi 4 árið 1958. Ráku þau þar fatahreinsun og þvottaþjónustu, m.a. fyrir Vestmannaeyjabæ. Eftir gos keyptu þau og ráku þvottahús á Flötunum til ársins 1988, er þau Vilhjálmur urðu að hætta rekstrinum vegna veikinda hans.
María bjó að Sólhlíð 19, en dvaldi síðast í Hraunbúðum.
Hún lést 2016.

I. Maður Maríu, (22. febrúar 1942), var Vilhjálmur Árnason, f. 19. febrúar 1921, d. 19. febrúar 1993.
Börn þeirra:
1. Óli Árni Vilhjálmsson, f. 18. október 1941, d. 24. desember 2021.
2. Þór Ísfeld Vilhjálmsson, f. 30. nóvember 1945.
3. Sæmundur Vilhjálmsson, f. 7. desember 1948.
4. Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir, f. 2. nóvember 1956.
5. Vilhjálmur Vilhjálmsson, f. 5. mars 1963.

Myndir

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.