„Herdís Magnúsdóttir (Engidal)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Herdís Magnúsdóttir (Engidal)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 18. febrúar 2021 kl. 15:14

Herdís Magnúsdóttir frá Litla-Landi í Ölfusi fæddist 14. júní 1868 á Hrauni þar og lést 1. apríl 1953.
Foreldrar hennar voru Magnús Magnússon bóndi, f. 10. október 1842, d. 14. apríl 1914, og kona hans Aldís Helgadóttir húsfreyja, f. 26. nóvember 1842, d. 14. júlí 1920.

Herdís var með foreldrum sínum í æsku, eignaðist barn með Helga þar 1893. Þau giftu sig 1893, eignuðust átta börn, en misstu þrjú þeirra á ungum aldri. Herdís var húsfreyja skamma stund á Litla-Landi í Ölfusi, í Húsatóftum í Grindavík 1894 til 1899, á Brú í Hafnarfirði til 1920, síðan í Engidal við Brekastíg 15c og á Brekastíg 19.
Þau fluttu til Reykjavíkur 1935. Helgi lést 1940 og Herdís 1953.

I. Maður Herdísar, (1893), var Helgi Þórðarson steinsmiður, verkamaður, sjómaður, f. 22. júlí 1866, d. 17. nóvember 1940.
Börn þeirra:
1. Júnía Þuríður Helgadóttir húsfreyja á Höllustöðum í Hún, síðar á Blönduósi, f. 9. júní 1893, d. 29. september 1961. Maður hennar Jón Í. Ólafsson.
2. Hindrika Júlía Helgadóttir húsfreyja, f. 2. júlí 1894 á Húsatóftum í Grindavík, d. 27. febrúar 1968, kona Sveinbjarnar Ágústs Benónýssonar.
3. Magnús Helgason skrifstofustjóri, f. 8. september 1896 á Húsatóftum í Grindavík, d. 10. október 1976. Kona hans Magnína Sveinsdóttir.
4. Aldís Magnúsdóttir, f. 9. janúar 1898, d. 12. júní 1898.
5. Þórður Helgason, f. 28. febrúar 1899, d. 1. mars 1900.
6. Albert Helgason múrari, 18. júní 1901 í Hafnarfirði, d. 3. apríl 1961. Kona hans, skildu), Jóhanna Nikólína Guðjónsdóttir.
7. Hólmfríður Rúffía Helgadóttir, f. 14. júní 1903, d. 20. desember 1919.
8. Dorothea Guðný Helgadóttir öryrki, f, 11. desember 1906 í Hafnarfirði, d. 20. desember 1959.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.