„Jórunn Einarsdóttir (Valhöll)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|200px|''Jórunn Einarsdóttir. '''Jórunn Einarsdóttir''' húsfreyja, verkakona fæddist 5. ágúst 1928 á Þórarinsstaðaeyrum í Seyðisf...)
 
m (Verndaði „Jórunn Einarsdóttir (Valhöll)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 21. desember 2020 kl. 16:28

Jórunn Einarsdóttir.

Jórunn Einarsdóttir húsfreyja, verkakona fæddist 5. ágúst 1928 á Þórarinsstaðaeyrum í Seyðisfirði og lést 14. febrúar 2012 á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.
Foreldrar hennar voru Einar Sigfinnur Guðjónsson sjómaður, síðar kaupmaður í Sjávarborg á Seyðisfirði, síðar í Reykjavík, f. 22. október 1901 á Borgarfirði eystra, d. 2. ágúst 1991 og kona hans Anna Bekk Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1. ágúst 1903, d. 17. janúar 1994.

Systir Jórunnar var Vilborg Sigríður Einarsdóttir húsfreyja, saumakona, f. 21. nóvember 1921, d. 18. janúar 2005. Maður hennar var Einar Runólfsson skipstjóri.

Foreldrar Jórunnar skildu, er hún var ung, en giftust aftur síðar.
Hún réðst í vist til Vilborgar systur sinnar í Eyjum 14 ára gömul, en síðan var hún í vist hjá Einari lækni og Ólafi Lárussyni lækni.
Þau Friðþjófur giftu sig 1949, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í Valhöll, byggðu síðar á Urðavegi 37 og bjuggu þar til Goss. Eftir gos byggðu þau hús í Birkihlíð 14, fluttust þaðan á Boðaslóð 13, en sumarið 2001 fluttu þau aftur í Valhöll og bjuggu þar, uns þau fluttu í Hraunbúðir.
Jórunn lést 2012 og Friðþjófur Sturla lést 2020.

I. Maður Jórunnar, (5. nóvember 1949), var Friðþjófur Sturla Másson frá Valhöll, sjómaður, stýrimaður, verkstjóri, f. 25. mars 1927, d. 26. febrúar 2020.
Börn þeirra:
1. Inda Marý Friðþjófsdóttir húsfreyja, f. 14. febrúar 1949 í Valhöll. Maður hennar Sigurður Friðbjörnsson.
2. Einar Friðþjófsson kennari, f. 13. september 1950 í Valhöll. Kona hans Katrín Freysdóttir.
3. Anna Friðþjófsdóttir húsfreyja, f. 24. mars 1957. Maður hennar Þórður Hallgrímsson.
4. Már Friðþjófsson, f. 14. september 1959. Kona hans Jóhanna Kolbrún Þorbjörnsdóttir.
5. Svanhvít Friðþjófsdóttir húsfreyja, f. 29. september 1965. Maður hennar Egill Guðni Guðnason.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.