Jóhanna Kolbrún Þorbjörnsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Kolbrún Þorbjörnsdóttir húsfreyja, sjúkraliði fæddist 12. júní 1961 í Reykjavík.
Foreldrar hennar Þorbjörn Jónsson verkamaður, f. 1. okt. 1923 í Reykjavík, d. 22. júní 2013, og kona hans Anna Fjóla Jónsdóttir húsfreyja, f. 23. des. 1923 í Reykjavík, d. 26. febrúar 2004.

Jóhanna var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð 3. bekkjar gagnfræðingur í Reykjavík 1977, lauk sjúkraliðanámi.
Jóhanna flutti til Eyja 1977, vann í fiski og á gæsluvelli, síðan í Hraunbúðum.
Þau Már giftu sig 1983, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu á Hásteinsvegi 37, síðar á Hólagötu 2.

I. Maður Jóhönnu Kolbrúnar, (10. desember 1983), er Már Friðþjófsson sjómaður, launafulltrúi, f. 14. september 1959, d. 25. desember 2022.
Börn þeirra:
1. Friðþjófur Másson bifreiðastjóri hjá Olíudreifingu, f. 28. mars 1979. Fyrrum kona hans Ósk Auðbergsdóttir.
2. Víkingur Másson viðskiptastjóri. Hann er viðskiptafræðingur með MA-próf í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði, f. 19. mars 1983. Sambúðarkona hans Guðrún Katrín Oddsdóttir.
3. Soffía Másdóttir húsfreyja, starfsmaður á elliheimili, f. 12. júlí 1987. Sambúðarmaður hennar Emil Andersen.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.