„Ritverk Árna Árnasonar/Sigurður Einarsson (Norðurgarði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Sigurður Einarsson (Norðurgarði), h.m..jpg|250px|thumb|''Sigurður Einarsson, situr, og  félagi.]]
[[Mynd:Sigurður Einarsson (Norðurgarði), h.m..jpg|250px|thumb|''Sigurður Einarsson, situr, og  félagi.]]
'''''Kynning.'''''
'''''Kynning.'''''
'''Sigurður Einarsson''', [[Norðurgarður vestri|Norðurgarði vestri]], fæddist 6. júlí 1895 og lést 1. júní 1929, hrapaði í [[Geldungur|Geldungi]].

'''Sigurður Einarsson''', [[Norðurgarður vestri|Norðurgarði vestri]], fæddist 6. júlí 1895 og lést 1. júní 1929, hrapaði í [[Geldungur|Geldungi]].

Faðir hans var [[Einar Jónsson (Norðurgarði)|Einar Jónsson]] bóndi í Norðurgarði, f. 12. júní 1859, d. 8. ágúst 1937.
1. Andvana  stúlka, f. 6. nóvember 1922.

Faðir hans var [[Einar Jónsson (Norðurgarði)|Einar Jónsson]] bóndi í Norðurgarði, f. 12. júní 1859, d. 8. ágúst 1937.

2. [[Ásta Margrét Sigurðardóttir (Norðurgarði)|Ásta Margrét Sigurðardóttir]], fædd 25. september 1924, d. 19. nóvember 1995, síðast ræstitæknir í Reykjavík.

3. [[Árni Sigurðsson (Norðurgarði)|Einar ''Árni'' Sigurðsson]], f. 5. september 1927 í [[Gíslholt]]i, d. 27. janúar 2003.
Móðir Sigurðar var [[Árný Einarsdóttir (Norðurgarði)|Árný Einarsdóttir]] húsfreyja, f. 24. apríl 1863, d. 9. ágúst 1938.

Móðir Sigurðar var [[Árný Einarsdóttir (Norðurgarði)|Árný Einarsdóttir]] húsfreyja, f. 24. apríl 1863, d. 9. ágúst 1938.

Kona Sigurðar var [[Margrét Jónsdóttir (Norðurgarði vestri)|Margrét Jónsdóttir]], f. 23. ágúst 1894, d. 3. júní 1934.

Kona Sigurðar var [[Margrét Jónsdóttir (Norðurgarði vestri)|Margrét Jónsdóttir]] húsfreyja, f. 23. ágúst 1894, d. 3. júní 1934.

Börn Sigurðar og Margrétar:

Börn Sigurðar og Margrétar:

1. Andvana stúlka, f. 6. nóvember 1922.

2. [[Ásta Margrét Sigurðardóttir (Norðurgarði)|Ásta Margrét Sigurðardóttir]], fædd 25. september 1924, d. 19. nóvember 1995, síðast ræstitæknir í Reykjavík.

3. [[Árni Sigurðsson (Norðurgarði)|Einar ''Árni'' Sigurðsson]], f. 5. september 1927 í [[Gíslholt]]i, d. 27. janúar 2003.

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Útgáfa síðunnar 17. febrúar 2018 kl. 14:41

Sigurður Einarsson, situr, og félagi.

Kynning. Sigurður Einarsson, Norðurgarði vestri, fæddist 6. júlí 1895 og lést 1. júní 1929, hrapaði í Geldungi.
Faðir hans var Einar Jónsson bóndi í Norðurgarði, f. 12. júní 1859, d. 8. ágúst 1937.
Móðir Sigurðar var Árný Einarsdóttir húsfreyja, f. 24. apríl 1863, d. 9. ágúst 1938.

Kona Sigurðar var Margrét Jónsdóttir húsfreyja, f. 23. ágúst 1894, d. 3. júní 1934.
Börn Sigurðar og Margrétar:
1. Andvana stúlka, f. 6. nóvember 1922.
2. Ásta Margrét Sigurðardóttir, fædd 25. september 1924, d. 19. nóvember 1995, síðast ræstitæknir í Reykjavík.
3. Einar Árni Sigurðsson, f. 5. september 1927 í Gíslholti, d. 27. janúar 2003.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Sigurður var hár vexti og þrekinn, dálítið lotinn í herðum, rauðbirkinn, fremur breiðleitur og andlit karlmannlegt.
Hann var allvel styrkur, en stirður í hreyfingum og heldur þunglamalegur á velli. Heldur var hann hlédrægur, en í sínum hóp gat hann brugðið fyrir sig glettni og var oft orðheppinn í viðræðum, þótt hins vegar hafi hann þótt yfirleitt þungur í lund.
Veiðimaður var Sigurður í meðallagi, en iðinn og þrautseigur og töluvert kappsfullur. Hann var og mikið við bjargferðir, duglegur liðsmaður, en enginn afburðamaður; til þess vantaði lipurðina. Sigamaður var hann nokkur, þótt aldrei næði hann sérlegri leikni í fjallaferðum.
Sigurður var mest við lundaveiðar í Elliðaey, en fór um margar úteyjanna til fugla og eggja. Hann hrapaði til dauðs í Geirfuglaskeri við eggjatöku 1. júní 1929.

Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.