„Guðmundur Júníus Jónsson“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Guðmundur Júníus Jónsson''' frá Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, sjómaður í Eyjum, síðar skipstjóri á Akranesi fæddist 29. júní 1908 og lést. 22. ágúst 1972.
| '''Guðmundur Júníus Jónsson''' frá Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, sjómaður í Eyjum, síðar skipstjóri á Akranesi fæddist 29. júní 1908 og lést. 22. ágúst 1972.

Faðir Guðmundar Júníusar var Jón | Faðir Guðmundar Júníusar var [[Jón Guðmundsson (Gamla-Hrauni)|Jón]] formaður að Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, f. 17. september 1856, d. 8. september 1941, Guðmundsson bónda og formanns á Gamla-Hrauni 1860, f. 10. júlí 1830, d. 21. febrúar 1914, Þorkelssonar bónda í Mundakoti, f. 1802, d. 29. apríl 1880, Einarssonar „ríka“ Hannessonar, og konu Þorkels í Mundakoti, Guðrúnar húsfreyju, f. 1804, d. 8. júní 1863, Magnúsdóttur í Mundakoti Arasonar.

Móðir Jóns á Gamla-Hrauni og kona Guðmundar Þorkelssonar var Þóra húsfreyja, f. 24. október 1830, d. 4. september 1918, Símonardóttir bónda, skipasmiðs og formanns í Brautartungu í Stokkseyrarhreppi, en lengst á Gamla-Hrauni, f. 1801 í Simbakoti, d. 21. nóvember 1881, Þorkelssonar bónda, skipasmiðs og hreppstjóra á Gamla-Hrauni, Jónssonar og konu Þorkels, Valgerðar húsfreyju, f. 1765, d. 7. febrúar 1859, Aradóttur Jónssonar.
| Móðir Jóns á Gamla-Hrauni og kona Guðmundar Þorkelssonar var Þóra húsfreyja, f. 24. október 1830, d. 4. september 1918, Símonardóttir bónda, skipasmiðs og formanns í Brautartungu í Stokkseyrarhreppi, en lengst á Gamla-Hrauni, f. 1801 í Simbakoti, d. 21. nóvember 1881, Þorkelssonar bónda, skipasmiðs og hreppstjóra á Gamla-Hrauni, Jónssonar og konu Þorkels, Valgerðar húsfreyju, f. 1765, d. 7. febrúar 1859, Aradóttur Jónssonar.

Þóra var eftirsótt til hjúskapar. Tyrfingur Snorrason formaður á Stokkseyri var einn þeirra, sem á sóttu, en missti af til Guðmundar Þorkelssonar. Tyrfingur kvæntist ekki. Hann kvað:
| Þóra var eftirsótt til hjúskapar. Tyrfingur Snorrason formaður á Stokkseyri var einn þeirra, sem á sóttu, en missti af til Guðmundar Þorkelssonar. Tyrfingur kvæntist ekki. Hann kvað:

Útgáfa síðunnar 6. mars 2016 kl. 11:04
Guðmundur Júníus Jónsson frá Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, sjómaður í Eyjum, síðar skipstjóri á Akranesi fæddist 29. júní 1908 og lést. 22. ágúst 1972.
Faðir Guðmundar Júníusar var Jón formaður að Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, f. 17. september 1856, d. 8. september 1941, Guðmundsson bónda og formanns á Gamla-Hrauni 1860, f. 10. júlí 1830, d. 21. febrúar 1914, Þorkelssonar bónda í Mundakoti, f. 1802, d. 29. apríl 1880, Einarssonar „ríka“ Hannessonar, og konu Þorkels í Mundakoti, Guðrúnar húsfreyju, f. 1804, d. 8. júní 1863, Magnúsdóttur í Mundakoti Arasonar.
Móðir Jóns á Gamla-Hrauni og kona Guðmundar Þorkelssonar var Þóra húsfreyja, f. 24. október 1830, d. 4. september 1918, Símonardóttir bónda, skipasmiðs og formanns í Brautartungu í Stokkseyrarhreppi, en lengst á Gamla-Hrauni, f. 1801 í Simbakoti, d. 21. nóvember 1881, Þorkelssonar bónda, skipasmiðs og hreppstjóra á Gamla-Hrauni, Jónssonar og konu Þorkels, Valgerðar húsfreyju, f. 1765, d. 7. febrúar 1859, Aradóttur Jónssonar.
Þóra var eftirsótt til hjúskapar. Tyrfingur Snorrason formaður á Stokkseyri var einn þeirra, sem á sóttu, en missti af til Guðmundar Þorkelssonar. Tyrfingur kvæntist ekki. Hann kvað:
- Eg á fljóðum fæ ei ást,
- finn því hljóður trega,
- því sú góða Þóra brást;
- það fór slóðalega.
Móðir Þóru og kona Símonar var Sesselja húsfreyja og móðir amk. 15 barna, f. 1801, d. 1859, Jónsdóttir bónda á Ásgautsstöðum, Óseyrarnesi (Nesi), síðast á Selfossi, f. 1767, d. 8. febrúar 1856, Símonarsonar og konu Jóns Símonarsonar, Guðrúnar húsfreyju frá Kakkarhjáleigu (síðar nefnt Hoftún), f. 1769, d. 15. apríl 1837, Snorradóttur, Knútssonar.
Móðir Guðmundar Júníusar og kona Jóns á Gamla-Hrauni var Ingibjörg Gíslína húsfreyja á Gamla-Hrauni, f. 1. september 1867, d. 2. apríl 1937, Jónsdóttir bónda á Miðhúsum í Sandvíkurhreppi, f. 12. apríl 1834, d. 19. júní 1872, Jónssonar bónda á Vötnum í Ölfusi, f. 1801, d. 19. febrúar 1865, Þórðarsonar, Jónssonar, og konu Þórðar, Ingveldar Guðnadóttur.
Móðir Jóns á Míðhúsum og kona Jóns á Vötnum var Sigríður húsfreyja, f. 28. maí 1806, d. 25. mars 1868, Gísladóttir bónda og hreppstjóra í Reykjakoti í Ölfusi, f. 1760, d. 27. maí 1840, Guðnasonar, og konu Gísla, Guðríðar húsfreyju, f. 1765 að Sogni í Ölfusi, d. 6. maí 1837, Jónsdóttur.
Móðir Ingibjargar Gíslínu og kona Jóns á Miðhúsum var Aðalbjörg húsfreyja, f. 31. janúar 1830 á Álftanesi, d. 15. október 1917, Eyjólfsdóttir bónda á Brekkuflöt á Álftanesi 1845, f. 29. ágúst 1800, d. 12. mars 1868, Eyjólfssonar, Jónssonar.
Móðir Aðalbjargar og kona Eyjólfs á Brekkuflöt var Ingibjörg húsfreyja, f. 5. desember 1797 á Þórustöðum í Grímsnesi, d. 22. maí 1866, Sturludóttir bónda á Þórustöðum, skírður 19. desember 1750, d. 27. ágúst 1823, Jónssonar.
Börn Jóns Guðmundssonar á Gamla-Hrauni og Ingibjargar Gíslínu Jónsdóttur húsfreyju í Eyjum voru:
1. Þórður Jónsson formaður og skipasmiður á Bergi, f. 10. júní 1887, d. 1. febrúar 1939.
2. Guðmundur Jónsson formaður, skipasmiður á Háeyri, f. 14. október 1888, d. 27. nóvember 1976.
3. Gunnar Marel Jónsson formaður og skipasmiður, f. 6. janúar 1891, d. 7. maí 1979.
4. Magnús Valdimar Jónsson skipasmiður á Bergi, f. 27. október 1892, d. 13. október 1920.
5. Haraldur Jónsson sjómaður á Bergi, f. 18. nóvember 1899, d. 20. febrúar 1962.
6. Guðni Jónsson prófessor, f. 22. júlí 1901, d. 7. mars 1974. Hann var kennari við unglingaskóla í Eyjum 1926-1927.
7. Lúðvík Jónsson bakarameistari, síðar á Selfossi, f. 14. október 1904, d. 21. mars 1983. Hann ólst upp hjá Árna Filippussyni og Gíslínu Jónsdóttur í Ásgarði, en Gíslína var móðursystir hans.
8. Ágústína Jónsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. 11. mars 1906, d. 1. nóvember 1989. Hún ólst upp um skeið hjá Þórði á Bergi, en lengst í Ásgarði hjá Gíslínu frænku sinni og Árna.
9. Guðmundur Júníus Jónsson sjómaður í Eyjum, síðar skipstjóri á Akranesi, f. 29. júní 1908, d. 22. ágúst 1972.
Móðursystir systkinanna var Gíslína Jónsdóttir húsfreyja í Ásgarði, f. 18. apríl 1871, d. 18. júlí 1953.
Guðmundur Júníus var með foreldrum sínum á Gamla-Hrauni 1910, var tökubarn á Strandarhöfði í V-Landeyjum 1920.
Hann gerði Salbjörgu barn 1926, Hinrik, sem varð undir bíl og lést 1933.
Guðmundur Júníus var á Bergi 1930.
Dvöl hans í Eyjum er a.ö.l. óljós.
Guðmundur Júníus var skipstjóri á Siglufirði og Akranesi.
Hann lést 1972.
I. Barnsmóðir hans var Salbjörg Bjarnadóttir vinnukona, f. 14. maí 1899.
Barn þeirra var
1. Hinrik Guðmundsson, f. 10. janúar 1927 á Vesturhúsum . Hann varð fyrir bíl í Reykjavík 1933 og lést 26. mars.
II. Bústýra Guðmundar Júníusar á Akranesi var Kristín Hólmfríður Ásgrímsdóttir, f. 8. ágúst 1906, d. 18. mars 1984. Hún var dóttir Ásgríms Stefánssonar bónda á Ási í Hjaltadal.
Börn þeirra:
2. Franz Sævar Guðmundsson sjómaður á Akranesi, f. 2. janúar 1932 á Siglufirði.
3. Ingibjörg Gíslína Guðmundsdóttir, f. 4. september 1933 á Siglufirði.
4. Sigmunda Kolbrún Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 11. október 1935 á Akranesi.
5. Ásgrímur Þór Guðmundsson sjómaður, f. 11. ágúst 1940 á Akranesi.
6. Barði Erling Guðmundsson sjómaður, f. 28. nóvember 1944, d. 17. mars 1993.
7. Jónína Lilja Guðmundsdóttir, f. 26. september 1946 á Akranesi.
III. Barnsmóðir Guðmundar var Jóhanna Gunnarsdóttir verkakona frá Holti á Síðu, f. 25. apríl 1901.
Barn þeirra:
8. Guðmundur Agnar Guðmundsson bifreiðastjóri, f. 27. febrúar 1943 í Reykjavík, d. 10. júní 2004.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Bergsætt II. útgáfa. Guðni Jónsson 1966.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.