„Guðrún Jónsdóttir (eldri) (Kirkjubæ)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðrún Jónsdóttir''' húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 27. mars 1862 í Dyrhólasókn í Mýrdal og lést 14. janúar 1939.
Faðir hennar var Jón bóndi á Ket...) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 7: | Lína 7: | ||
Guðrún var systir [[Einar Jónsson (Norðurgarði)|Einars]] og [[Bjarni Jónsson (Norðurgarði)|Bjarna]] í Norðurgarði Jónssona.
| Guðrún var systir [[Einar Jónsson (Norðurgarði)|Einars]] og [[Bjarni Jónsson (Norðurgarði)|Bjarna]] í Norðurgarði Jónssona.

Maður Guðrúnar var [[Arngrímur Sveinbjörnsson]] bóndi á [[Kirkjubær|Kirkjubæ]], f. 17. júní 1868, d. 11. febrúar 1937.
| Maður Guðrúnar var [[Arngrímur Sveinbjörnsson (Kirkjubæ)|Arngrímur Sveinbjörnsson]] bóndi á [[Kirkjubær|Kirkjubæ]], f. 17. júní 1868, d. 11. febrúar 1937.

Börn Arngríms og Guðrúnar 1910:
| Börn Arngríms og Guðrúnar 1910:

Útgáfa síðunnar 5. ágúst 2013 kl. 14:18
Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 27. mars 1862 í Dyrhólasókn í Mýrdal og lést 14. janúar 1939.
Faðir hennar var Jón bóndi á Ketilsstöðum, síðar á Litlu-Hólum í Mýrdal, f. 1. mars 1830 í Hryggjum, d. 20. mars 1871, Þorkelsson bónda í Hryggjum í Mýrdal 1835, f. 25. apríl 1801, d. 24. mars 1862, Runólfssonar húsmanns í Rofabæ 1801, Hávarðssonar og konu Runólfs í Rofabæ, Ragnhildar Ólafsdóttur.
Móðir Jóns á Ketilsstöðum og kona Þorkels í Hryggjum var Þórunn húsfreyja frá Brekkum í Mýrdal, f. 20. október 1791, d. 8. febrúar 1870, Sveinsdóttir bónda á Brekkum 1801, Eyjólfssonar, og konu Sveins, Guðrúnar húsfreyju Þóðardóttur prests í Kálfholti Sveinssonar og konu sr. Þórðar, Guðfinnu Þorsteinsdóttur í Árbæ í Holtum Kortssonar.
Móðir Guðrúnar á Kirkjubæ og kona Jóns á Ketilsstöðum var Ingiríður húsfreyja, f. 2. nóvember 1832 í Fjósum, d. 18. janúar 1913 í Norðurgarði í Eyjum, Einarsdóttir bónda á Giljum í Mýrdal 1835, f. 1790 í Vindási í Hvolhreppi, d. 3. júní 1866 í Hryggjum, Jónssonar bónda á Brekkum í Hvolhreppi, f. 1762, d. 12. febrúar 1842, Þorbjörnssonar, og konu Jóns á Brekkum, Vilborgar húsfreyju, f. 1763, d. 14. febrúar 1843, Jónsdóttur.
Móðir Ingiríðar Einarsdóttur og kona Einars á Giljum var Salgerðar húsfreyja, f. 1789 í Eyjum, d. 10. júní 1862 á Ketilsstöðum, vinnukona á Flókastöðum í Fljótshlíð 1816, Bjarnadóttir og Guðrúnar Björnsdóttur, f. 1765.
Guðrún var systir Einars og Bjarna í Norðurgarði Jónssona.
Maður Guðrúnar var Arngrímur Sveinbjörnsson bóndi á Kirkjubæ, f. 17. júní 1868, d. 11. febrúar 1937.
Börn Arngríms og Guðrúnar 1910:
1. Engilbert, f. 17. ágúst 1899, d. 14. maí 1920, drukknaði af smábát, sem hvolfdi í Höfninni í kastvindi.
2. Salgerður, (Sala á Kirkjubæ) húsfreyja á Kirkjubæ, f. 22. október 1905, d. 25. mars 1981, kona Jóns Nikulássonar, f. 6. ágúst 1903, d. 1. júlí 1978.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
- Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.