„Ritverk Árna Árnasonar/Ágúst Ólafsson (Gíslholti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

Lína 24: Lína 24:
Börn Ágústs og Nönnu:

Börn Ágústs og Nönnu:

1. [[Jóhann Grétar Ágústsson]], f. 7. júní 1955, ókvæntur.

1. [[Jóhann Grétar Ágústsson]], f. 7. júní 1955, ókvæntur.

2. [[Jóna Kristín Ágústsdóttir]], f. 9. ágúst 1857, d. 18. október 2016. Maður hennar var  [[Birgir Guðjónsson|Magnús Birgir Guðjónsson]], f. 13. júlí 1949.

2. [[Jóna Kristín Ágústsdóttir]], f. 9. ágúst 1857, d. 18. október 2016. Maður hennar var  [[Birgir Guðjónsson (netagerðarmeistari)|Magnús Birgir Guðjónsson]], f. 13. júlí 1949.

3. [[Salbjörg Ágústsdóttir|Ágústa Salbjörg Ágústsdóttir]], f. 24. febrúar 1959, gift [[Ósvald Tórshamar|Ósvaldi Tórshamar]].

3. [[Salbjörg Ágústsdóttir|Ágústa Salbjörg Ágústsdóttir]], f. 24. febrúar 1959, gift [[Ósvald Tórshamar|Ósvaldi Tórshamar]].

4. [[Jenný Ágústsdóttir]], f. 2. janúar 1961, ógift.

4. [[Jenný Ágústsdóttir]], f. 2. janúar 1961, ógift.

Núverandi breyting frá og með 17. nóvember 2024 kl. 20:54

Ágúst Ólafsson.

Kynning.

Sveinn Ágúst Ólafsson frá Gíslholti fæddist 1. ágúst 1927 og lést 29. júlí 2003.
Foreldrar hans voru Ólafur Vigfússon formaður í Gíslholti, f. 21. ágúst 1891, d. 15. maí 1974 og kona hans Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 22. mars 1898, d. 19. apríl 1969.

Börn Kristínar og Ólafs:
1. Vigfús Ólafsson kennari, skólastjóri, f. 13. apríl 1918 að Raufarfelli u. A-Eyjafjöllum, d. 25. október 2000.
2. Kristný Ólafsdóttir fiskverkakona, f. 8. júlí 1921 að Raufarfelli u. Eyjafjöllum, d. 24. nóvember 2006.
3. Jóna Margrét Ólafsdóttir, f. 13. apríl 1924 á Vesturhúsum, d. 4. ágúst 1944.
4. Sveinn Ágúst Ólafsson útgerðarmaður, ,,trillukarl“, f. 1. ágúst 1927 í Gíslholti, d. 29. júlí 2003.
5. Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 22. júlí 1931 í Gíslholti, d. 30. júní 2018.
6. Guðjón Þorvarður Ólafsson skrifstofumaður, gjaldkeri, myndlistarmaður, bæjarlistamaður, f. 1. nóvember 1935 í Gíslholti.
Fóstursonur Kristínar og Ólafs, sonur Jónu Margrétar:
7. Jón Ólafur Vigfússon vélstjóri, forstjóri í Hafnarfirði, f. 18. júlí 1944.

Ágúst var smiður og smábátaútgerðarmaður („trillukarl“), f. 1. ágúst 1927, dáinn 29. júlí 2003.
Kona Ágústs var Nanna Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 27. september 1928, d. 1. nóvember 2019.
Þau Ágúst giftust 31. desember 1954.
Ágúst hafði byggt hluta íbúðarhússins að Austurvegi 22, er þau kynntust, og fluttust þau í húsið 1955.
Við Gos fluttu þau til Reykjavíkur, síðan í Hveragerði, en voru komin til Eyja innan árs.
Bjuggu þau að Heiðarvegi 61.

Börn Ágústs og Nönnu:
1. Jóhann Grétar Ágústsson, f. 7. júní 1955, ókvæntur.
2. Jóna Kristín Ágústsdóttir, f. 9. ágúst 1857, d. 18. október 2016. Maður hennar var Magnús Birgir Guðjónsson, f. 13. júlí 1949.
3. Ágústa Salbjörg Ágústsdóttir, f. 24. febrúar 1959, gift Ósvaldi Tórshamar.
4. Jenný Ágústsdóttir, f. 2. janúar 1961, ógift.
5. Ólafur Gísli Ágústsson, f. 15. ágúst 1965, kvæntur Báru Kristinsdóttur Kristinssonar Ástgeirssonar, ættuð frá Miðhúsum. Þau skildu.
6. Jón Eysteinn Ágústsson, f. 19. október 1970.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara: Bjargveiðimannatal.
Ágúst er lágur vexti, en nokkuð þrekinn og feitlaginn, búlduleitur, dökkhærður og frísklegur í ásýnd. Hann er prúðmannlegur í framkomu, stilltur og gætinn í orðum, léttur í lund, snar í hreyfingum; ágætur félagi og skemmtilegur.
Hann er fremur ungur veiðimaður, en hefur náð góðum árangri, alls óhræddur og virkar jafnvel full kæruleysislega og um of kaldrifjaður við bjarggöngu, en reyndin er sú, að hann fer gætilega, en er alls ósmeykur. Bendir þar til staður á austurbrúninni fram af gamla kofanum, mjög tæpur staður á örmjóum bergfláa; þar veiðir Ágúst ca. metra fyrir neðan brún og unir sér vel. Ágúst er kappsfullur og fyrirhyggjumaður og hefir verið fyrirliði núverandi Suðureyjarfélags, vellátinn af félögum sínu.

Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Heimildir

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.