Salbjörg Ágústsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ágústa Salbjörg Ágústsdóttir, húsfreyja fæddist 24. febrúar 1959.
Foreldrar hennar voru Ágúst Ólafsson, frá Gíslholti við Landagötu 20, smiður, f. 1. ágúst 1927, d. 29. júlí 2003, og kona hans Nanna Guðjónsdóttir, frá Svínaskógi á Fellsströnd, Snæf., húsfreyja, f. 27. september 1928, d. 1. nóvember 2019.

Börn Nönnu og Ágústs:
1. Jóhann Grétar Ágústsson, 7. júní 1955, ókvæntur.
2. Jóna Kristín Ágústsdóttir, f. 9. ágúst 1957, d. 18. ágúst 2016, gift Magnúsi Birgi Guðjónssyni.
3. Salbjörg Ágústsdóttir, f. 24. febrúar 1959, gift Ósvaldi Tórshamar.
4. Jenný Ágústsdóttir, f. 2. janúar 1961, ógift.
5. Ólafur Gísli Ágústsson, f. 15. ágúst 1965, kvæntur Báru Kristinsdóttur.
6. Jón Eysteinn Ágústsson, f. 19. október 1970.

Þau Ósvald giftu sig, eignuðust níu börn, en misst tvö þeirra. Þau bjuggu á Herðubreið við Heimagötu 28. Þau skildu.

I. Maður Salbjargar, skildu, er Ósvald Alexander Tórshamar, sjómaður, f. 8. október 1951.
Börn þeirra:
1. Jóhann Ágúst Tórshamar, f. 29. ágúst 1977.
2. Hildur Rán Tórshamar , f. 23. apríl 1985.
3. Alexander Páll Tórshamar, f. 1. október 1989.
4. Ólafur Eysteinn Tórshamar, f. 11. maí 1992.
5. Sigmundur Kristinn Tórshamar, f. 13. október 1993.
6. Róbert Freyr, f. 19. febrúar 1995, d. sama dag.
7. Albert Snær Tórshamar, f. 5. nóvember 1996.
8. Ósvald Salberg, f. 19. ágúst 1998, d. 23. júní 1999.
9. Guðlaugur Hróðmar Tórshamar, f. 12. janúar 2001.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.