„Ásta Haraldsdóttir (Garðshorni)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 6: | Lína 6: | ||
1. [[Ásta Haraldsdóttir (Garðshorni)|Ásta Guðmunda Haraldsdóttir]] húsfreyja í [[Garðshorn]]i, f. 26. október 1914 í Reykjavík, d. 2. júní 2005, gift [[Bjarni Jónsson (Garðshorni)|Bjarna Gíslasyni Jónssyni]], f. 28. september 1911, d. 9. júní 1987.
| 1. [[Ásta Haraldsdóttir (Garðshorni)|Ásta Guðmunda Haraldsdóttir]] húsfreyja í [[Garðshorn]]i, f. 26. október 1914 í Reykjavík, d. 2. júní 2005, gift [[Bjarni Jónsson (Garðshorni)|Bjarna Gíslasyni Jónssyni]], f. 28. september 1911, d. 9. júní 1987.

2. [[Sigríður Haraldsdóttir (Saltabergi)|Sigríður Haraldsdóttir]] húsfreyja að [[Saltaberg]]i, f. 29. júní 1916 á [[Strandberg]]i, d. 17. febrúar 1993, gift [[Hlöðver Johnsen|Hlöðveri Johnsen]] bankaritara.
| 2. [[Sigríður Haraldsdóttir (Saltabergi)|Sigríður Haraldsdóttir]] húsfreyja að [[Saltaberg]]i, f. 29. júní 1916 á [[Strandberg]]i, d. 17. febrúar 1993, gift [[Hlöðver Johnsen|Hlöðveri Johnsen]] bankaritara.

3. [[Guðríður Haraldsdóttir (Garðshorni)|Guðríður Haraldsdóttir]] húsfreyja, f. 2. október 1917 á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]], d. 21. desember 1961, gift [[Þórarinn Þorsteinsson|Þórarni Þorsteinssyni]] kaupmanni, f. 29. júlí 1923, d. 26. febrúar 1984.
| 3. [[Guðríður Haraldsdóttir (Garðshorni)|Guðríður Haraldsdóttir]] húsfreyja, f. 2. október 1917 á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]], d. 21. desember 1961, gift [[Þórarinn Þorsteinsson (Turninum)|Þórarni Þorsteinssyni]] kaupmanni, f. 29. júlí 1923, d. 26. febrúar 1984.

4. [[Ágústa Haraldsdóttir (Garðshorni)|Ágústa Haraldsdóttir]] húsfreyja, f. 14. ágúst 1919 á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]], d. 27. desember 1989, gift [[Trausti Jónsson (bifreiðastjóri)|Trausta Jónssyni]] verslunarmanni og bifreiðastjóra, f. 11. janúar 1917, d. 2. janúar 1994.
| 4. [[Ágústa Haraldsdóttir (Garðshorni)|Ágústa Haraldsdóttir]] húsfreyja, f. 14. ágúst 1919 á [[Vilborgarstaðir|Vilborgarstöðum]], d. 27. desember 1989, gift [[Trausti Jónsson (bifreiðastjóri)|Trausta Jónssyni]] verslunarmanni og bifreiðastjóra, f. 11. janúar 1917, d. 2. janúar 1994.

Útgáfa síðunnar 25. júlí 2019 kl. 21:42
Ásta Guðmunda Haraldsdóttir frá Garðshorni, húsfreyja fæddist 26. október 1914 á Njálsgötu 39 í Reykjavík og lést 2. júní 2005.
Foreldrar hennar voru Haraldur Jónasson formaður og síðar fiskimatsmaður í Eyjum, f. 30. júní 1888, d. 27. desember 1941 og kona hans Ágústa Friðsteinsdóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1891, d. 10. ágúst 1977.
Börn Ágústu og Haraldar voru:
1. Ásta Guðmunda Haraldsdóttir húsfreyja í Garðshorni, f. 26. október 1914 í Reykjavík, d. 2. júní 2005, gift Bjarna Gíslasyni Jónssyni, f. 28. september 1911, d. 9. júní 1987.
2. Sigríður Haraldsdóttir húsfreyja að Saltabergi, f. 29. júní 1916 á Strandbergi, d. 17. febrúar 1993, gift Hlöðveri Johnsen bankaritara.
3. Guðríður Haraldsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1917 á Vilborgarstöðum, d. 21. desember 1961, gift Þórarni Þorsteinssyni kaupmanni, f. 29. júlí 1923, d. 26. febrúar 1984.
4. Ágústa Haraldsdóttir húsfreyja, f. 14. ágúst 1919 á Vilborgarstöðum, d. 27. desember 1989, gift Trausta Jónssyni verslunarmanni og bifreiðastjóra, f. 11. janúar 1917, d. 2. janúar 1994.
Ásta var með foreldrum sínum í æsku, í Reykjavík við fæðingu, fluttist með þeim til Eyja 1915, var með þeim á Vilborgarstöðum á því ári, á Strandbergi 1916 við fæðingu Sigríðar, á Vilborgarstöðum 1917 við fæðingu Guðríðar og þar bjuggu þau til 1924.
Þau voru flutt í nýbyggt hús sitt að Garðshorni 1925.
Ásta átti heimili í Keflavík 1930, þar sem hún var vinnukona hjá móðursystur sinni, komin til Eyja 1934 við fæðingu Magnúsar.
Ásta vann árum saman við afgreiðslu í Kaupfélaginu og í Fiskiðjunni.
Þau Bjarni giftu sig 1935, eignuðust þrjú börn. Þau eignuðust Strandberg og bjuggu þar til 1943, er þau seldu húsið og byggðu hæð ofan á Garðshorn. Þau leigðu efstu hæðina í Dal á meðan byggt var. Garðshorn sátu þau síðan meðan sætt var, en húsið eyðilagðist í Gosinu.
Eftir Gos bjuggu þau í fyrstu við Faxastíg, en síðan á Foldahrauni 40 til loka.
Bjarni lést 1987 og Ásta 2005.
Maður Ástu, (26. janúar 1935), var Bjarni Gíslason Jónsson skipstjóri, útgerðarmaður, netagerðarmaður í Garðshorni, f. 28. september 1911 á Ísafirði, d. 9. júní 1987.
Börn þeirra:
1. Magnús Bjarnason verkstjóri, sérhæfður starfsmaður fiskiðjuvera, f. 5. júlí 1934.
2. Ágústa Björk Bjarnadóttir Kjærnested húsfreyja, f. 2. febrúar 1939.
3. Ásta Birna Bjarnadóttir húsfreyja, f. 26. janúar 1945.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Magnús Bjarnason.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.