Ágústa Bjarnadóttir (Garðshorni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ágústa Björk Bjarnadóttir Kærnested frá Garðshorni við Heimagötu 40, húsfreyja fæddist 2. febrúar 1939.
Foreldrar hennar voru Bjarni Gíslason Jónsson sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, netagerðarmaður fæddur 28. september 1911 á Ísafirði, d. 9. júní 1987, og kona hans Ásta Guðmunda Haraldsdóttir frá Garðshorni, húsfreyja, f. 26. október 1914 í Reykjavík, d. 2. júní 2005.

Börn Ástu og Bjarna:
1. Magnús Bjarnason verkstjóri, starfsmaður fiskiðjuvera, f. 5. júlí 1934.
2. Ágústa Björk Bjarnadóttir Kjærnested húsfreyja, f. 2. febrúar 1939.
3. Ásta Birna Bjarnadóttir húsfreyja, f. 26. janúar 1945.

Ágústa var með foreldrum sínum.
Hún vann við afgreiðslu í Apótekinu í 5 ár og í Útvegsbankanum í Reykjavík, síðar Íslandsbanka.
Þau Anton Örn giftu sig 1964, eignuðust þrjú börn.

I. Maður Ágúst, (10. október 1964), er Anton Örn Kærnested loftskeytamaður, framkvæmdastjóri, f. 16. júní 1940. Foreldrar hans voru Gísli Friðrik Kærnested verslunarmaður, f. 13. október 1914, d. 28. apríl 1957, og kona hans Hildur Björnsdóttir Kærnested, húsfreyja, bankaritari, f. 27. nóvember 1916, d. 31. janúar 2005.
Börn þeirra:
1. Gísli Örn Kærnested matreiðslumaður, f. 16. janúar 1966. Fyrrum kona hans Ragnheiður Kristinsdóttir ættuð frá Eystri-Löndum.
2. Arna Sif Kærnested tölvunarfræðingur, f. 12. apríl 1967. Fyrrum maður hennar Kristinn Árnason.
3. Bjarni Örn Kærnested tölvunarfræðingur, f. 24. desember 1973. Kona hans Þóra Eggertsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Ágústa.
  • Íslendingabók.
  • Loftskeytamenn og fjarskiptin, 1. Ritstjóri Ólafur K. Björnsson. Félag íslenskra loftskeytamanna; 1987
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.