„Kristín Hólmfríður Friðriksdóttir“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 12: | Lína 12: | ||
Steinn lést 1947 og Kristín Hólmfríður 1968. | Steinn lést 1947 og Kristín Hólmfríður 1968. | ||
Maður Kristínar Hólmfríðar, (17. október 1903), var Steinn Sigurðsson klæðskeri í Reykjavík, á Akureyri, Ingólfshvoli og síðan í Reykjavík, f. 4. febrúar 1873, d. 9. nóvember 1947.
| Maður Kristínar Hólmfríðar, (17. október 1903), var [[Steinn Sigurðsson (Ingólfshvoli)|Steinn Sigurðsson]] klæðskeri í Reykjavík, á Akureyri, Ingólfshvoli og síðan í Reykjavík, f. 4. febrúar 1873, d. 9. nóvember 1947.

Börn þeirra:
| Börn þeirra:

1. [[Anna Guðrún Steinsdóttir]], f. 4. janúar 1905 í Reykjavík, d. 3. desember 1933.
| 1. [[Anna Guðrún Steinsdóttir]], f. 4. janúar 1905 í Reykjavík, d. 3. desember 1933.

Núverandi breyting frá og með 13. apríl 2016 kl. 21:59
Kristín Hólmfríður Friðriksdóttir húsfreyja á Ingólfshvoli fæddist 4. febrúar 1878 í Breiðagerði í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði og lést 4. júní 1968.
Foreldrar hennar voru Friðrik Pétursson bóndi, smiður og skipstjóri á Hálsi í Svarfaðardal, bóndi á Syðri-Reistará á Galmaströnd, síðast á Svínavatni í Svínadal í A-Hún., f. 19. febrúar 1841, d. 24. desember 1880, og kona hans Guðrún húsfreyja Pálsdóttir á Þorljótsstöðum í Skagafirði, Þórðarsonar.
Bróðir Kristínar var sr. Friðrik Friðriksson.
Faðir Kristínar lést, er hún var nær þriggja ára. Guðrún móðir hennar var ekkja, húskona á Svínavatni með börnin Kristínu og Friðrik 1880.
Kristín var fósturbarn á Tindum í Svínavatnshreppi 1890, var barnakennari í heimili með móður sinni og Friðriki bróður sínum í Reykjavík 1901.
Þau Steinn giftust 1903, eignuðust barn í Reykjavík 1905, voru á Akureyri 1906, eignuðust þar tvö börn, fluttust þaðan til Reykjavíkur 1908 með 3 börn sín, og Steinn hélt áfram til Eyja á því ári og bjó í London. Kristín kom með börnin þrjú frá Reykjavík 1909 og þau leigðu á Skjaldbreið til 1911.
Þau bjuggu á Ingólfshvoli í lok árs 1911 og síðan meðan þau dvöldu í Eyjum.
Í Eyjum ól Kristín 7 börn, missti eitt þeirra í fæðingu.
Þau fluttust til Reykjavíkur 1929.
Steinn lést 1947 og Kristín Hólmfríður 1968.
Maður Kristínar Hólmfríðar, (17. október 1903), var Steinn Sigurðsson klæðskeri í Reykjavík, á Akureyri, Ingólfshvoli og síðan í Reykjavík, f. 4. febrúar 1873, d. 9. nóvember 1947.
Börn þeirra:
1. Anna Guðrún Steinsdóttir, f. 4. janúar 1905 í Reykjavík, d. 3. desember 1933.
2. Margrét Steinsdóttir , f. 31. júlí 1906 á Akureyri, d. 27. september 1920.
3. Friðrik Steinsson, f. 11. nóvember 1907 á Akureyri, d. 25. júlí 1975.
4. Ásmundur Benedikt Steinsson, f. 17. desember 1909 á Skjaldbreið, d. 4. júlí 1981.
5. Anna Sigríður Steinsdóttir, f. 4. janúar 1911 á Skjaldbreið, d. 28. maí 1970.
6. Jóhannes Steinsson, f. 2. maí 1913 á Ingólfshvoli, d. 11. júní 1913.
7. Jóhannes Kristinn Steinsson bóndi á Stóru-Heiði í Mýrdal, síðar verslunarmaður í Garði, f. 19. desember 1914 á Ingólfshvoli, d. 24. desember 1989.
8. Sigurður Steinsson járnsmiður, myndhöggvari, f. 23. janúar 1916, d. 21. mars 2002.
9. Auður Steinunn Kristín Steinsdóttir, f. 11. mars 1917 á Ingólfshvoli, d. 15. febrúar 1984.
10. Ingólfur Páll Steinsson framkvæmdastjóri, f. 1. júní 1924 á Ingólfshvoli.
11. Barn, sem dó í fæðingu.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.