„Bjarnarey“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(15 millibreytingar ekki sýndar frá 4 notendum)
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:DSCF0860 bjarnarey crop.jpg|thumb|250px|left|Bjarnarey, loftmynd]]
{{Eyjur}}
{{Eyjur}}
'''Bjarnarey''' liggur skammt suður af [[Elliðaey]] og er næst henni í stærð, 0.32km2. Eyjan er mjög hálend og þverhníptir klettahamrar umliggja eyjuna alla nema á litlu svæði norðaustan megin, þar sem uppgangur er á eyjuna. Á miðri eyjunni er afar hár grasivaxin fjallhnúkur og í miðjum hnúknum er dæld. Fjallhnúkurinn nefnist ''Búnki'' og er gjallgígur líkt og á Elliðaey, hæsti punktur þar er 161m yfir sjávarmáli. Bjarnarey myndaðist í eldgosi um svipað leyti og Elliðaey eða fyrir 5-6 þúsund árum. [[Bjarnareyjarfélagið|Veiðikofi Bjarnareyinga]] er sunnan við Bunka og er sá eini á eyjunni. Graslendi þekur alla eyjuna og [[lundi]] hefur grafið sér holur mjög víða. Mikill og fjölbreyttur gróður er í eyni. Talsverðum fjölda [[sauðfé|sauðfjár]] er beitt í Bjarnarey og lundi er veiddur yfir sumartímann.
'''Bjarnarey''' liggur skammt suður af [[Elliðaey]] og er næst henni í stærð, 0.32km². Eyjan er mjög hálend og þverhníptir klettahamrar umlykja eyjuna alla nema á litlu svæði norðaustan megin. Þar er uppgangur á eyjuna. Annar uppgangur er norðvestan á eynni, á Hvannhillu, og þykir mun erfiðari. Á miðri eyjunni er afar hár grasivaxinn fjallhnúkur og í miðjum hnúknum er dæld. Fjallhnúkurinn nefnist ''Bunki'' og er gjallgígur líkt og á Elliðaey, hæsti punktur þar er 161 m yfir sjávarmáli. Bjarnarey myndaðist í eldgosi um svipað leyti og Elliðaey eða fyrir 5-6 þúsund árum. [[Bjarnareyjarfélagið|Veiðikofi Bjarnareyinga]] er sunnan við Bunka og er sá eini á eyjunni. Graslendi þekur alla eyjuna og [[lundi]] hefur grafið sér holur mjög víða. Mikill og fjölbreyttur gróður er í eyjunni. Talsverðum fjölda [[sauðfé|sauðfjár]] er beitt í Bjarnarey og lundi er veiddur yfir sumartímann, ásamt eggjatöku að vorlagi.


== Jón dynkur ==
== Jón dynkur ==
Margir menn hafa fengið viðurnefni í Vestmannaeyjum í gegnum tíðina. Ein sagan segir frá því að einhverju sinni var Jón nokkur mikill fjallamaður uppi í Bjarnaey að síga niður eggjum í bát sem var við eyna. Mennirnir á bátnum kipptu ógætilega í bandið þannig að Jón féll niður eyjuna og í sjóinn u.þ.b. 14 faðma. Öllum brá auðvitað mikið við, en um leið og Jón skaust upp úr kafinu sagði hann: „Kom ekki mikill dynkur, piltar?Eftir þetta var hann alltaf kallaður Jón dynkur.
[[Mynd:Bjarnarey.jpg|thumb|250px|Bjarnarey séð ofan af Heimakletti]]
Margir menn hafa fengið viðurnefni í Vestmannaeyjum í gegnum tíðina. Ein sagan segir frá því að einhverju sinni var Jón nokkur, mikill fjallamaður, uppi í Bjarnarey að síga niður eggjum í bát sem var við eyna. Mennirnir á bátnum kipptu ógætilega í bandið þannig að Jón féll niður úr eynni og í sjóinn u.þ.b. 14 faðma. Öllum brá auðvitað mikið við en um leið og Jón skaust upp úr kafinu sagði hann: „Heyrðuð þið ekki mikinn dynk, piltar?" Eftir þetta var hann alltaf kallaður Jón dynkur.


== Nissinn í Bjarnarey ==
==Úr örnefnaskrá [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussonar]]==
[[Mynd:Bjarnarey-vetur.jpg|thumb|left|300px|Bjarnarey í vetrarbúningi]]Dag einn ákváðu 5 menn fara út í eyju að veiða nokkra lunda í soðið. Þeir fóru snemma um morguninn, og ætluðu að koma aftur heim daginn eftir. Um 5 leytið fóru 2 menn upp í kofa að grilla. Komu hinir 3 svo um 7 leytið, og fengu sér að borða. Þegar þeir voru búnir að borða hjálpuðust þeir að við að vaska upp og ganga frá. Og svo settust þeir og fóru spila, og fengu sér í glas.
[[Mynd:Bjarnarey-vetur.jpg|thumb|250px|Bjarnarey í vetrarbúningi]]
'''Bjarnarey'''  liggur suður af [[Elliðaey|Ellirey]] ca ½ mílu frá [[Heimaey]]. Er hún beit helmingi minni en Ellirey, er þar slægjuland, sem nálega 100 hestar af heyi fást af. [[lundi|Lundatekja]] á ári um 16.000 og svartfugl 3.-5.000 (og hefir hún mestan [[svartfugl]] af öllum eyjunum). Við útnorðursnef eyjarinnar er uppganga erfið, nefnd '''Hvannhilla''', en norðausturnefið '''Brekaflá''', dregið af grunni, sem er þar skammt út frá nefnt '''Breki''' ; en milli nefjanna er nefnt '''Hvannhillubringir'''. Á austurjaðri eyjanna nyrst er vik, nefnt '''Höfn''' ; er uppganga beggja vegna, grasbekkur og nefnt '''Hafnarbrekka'''  norðan, en efst í henni og upp af Brekaflá, '''Hafnarbrekkuhaus'''.  


Um níuleytið sá einn maðurinn einhverja hreyfingu fyrir utan. Hann fór út til að gá hvað þetta væri, þá sá hann að þetta var maðurinn sem hafði hrapað fram af eyjunni sumarið áður.
Fyrir botni Hafnarinnar er urð með einum drang, '''Hafnardrang''' ; en upp af er allstór hamar, '''Glóraveiðar'''. En þar norður af '''Réttarhaus''', dregið af fjárrétt þar skammt frá. Syðri brekkan við Höfnina er nefnd '''Suður-Hafnarbrekka'''  og efst í henni '''Ingimundarflái'''. Góður veiðistaður; nýtt nafn (1880). Þar fyrir sunnan er hátt standberg, sem myndar hvilft. Er nyrst á þessu svæði nefnt '''Skora'''. Landsuðursnefið er nefnt '''Eystra-Haganef''', og er vestan í því hellir við sjó niður, '''Brynjólfshellir'''. En efst í nefinu er stór bekkur, '''Álkustallur'''. En upp af nefinu er '''Hagaskoruhaus'''  og enn ofar '''Hagaskorulágar'''. Suðvesturnefið er nefnt '''Vestra-Haganef''', en milli Haganefja eru '''Bringir'''  nefndir, grasivaxnir stallar. Fyrir norðan Vestra-Haganef er '''Fálkató''', dálítil hvilft í bergið með grasteygingum. Þar niður af í berginu eru '''Bergsteinsofanferðir'''  og þar niður af '''Stórabæli''', stærsti bekkur er svartfugl hefir verpt á hér.  


Það var svo mikil þoka hann sá ekki hvort þetta var plat eða í alvöru. Hann labbaði framar og féll fram af, og hann fannst á floti við Vestmannaeyjar nokkrum vikum seinna. Og síðan hefur hann gengið aftur í Bjarnaey.
Kringum 1860 var fyrst snarað þar, svo menn viti og höfðust þar 1800 svartfuglar – hér fyrir norðan eru '''Hrútaskorur''', gildrög grasivaxin. Þá kemur '''Matarkrókur''', sem liggur Hvannhillu, er áður er nefnd (matur dreginn þar upp af fuglamönnum, þegar ekki verður lagt að Steðja). Uppi á háeyjunni er hóll, '''Bunki''', með stórum eldgíg, er nefnist '''Bunkalág'''. Vestan í honum og neðan við hann er slægjuland, '''Slægjan'''.
 
== Myndir ==
<Gallery>
Mynd:Mannsi (10).JPG
Mynd:Hansueli (104).JPG
Mynd:Mannsi (6).JPG
Mynd:Bjarnarey 2.jpg
</gallery>
 
 
{{Heimildir|
* [http://www.bjarnarey.is Vefur veiðifélags Bjarnareyinga]
* ''Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum'', bls. 93 og 60.
* [[Gísli Lárusson]]. ''Örnefni á Vestmannaeyjum''. [http://www.ornefni.is Örnefnastofnun Íslands], 1914
}}


== Heimildir ==
* Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum, bls. 93 og 60.
* Munnleg frásögn, Halla Ólafsdóttir og Sigríður Jensdóttir.


[[Flokkur:Eyjur]]
[[Flokkur:Eyjur]]
[[Flokkur:Þjóðsögur]]
[[Flokkur:Þjóðsögur]]
[[Flokkur:Örnefni]]

Núverandi breyting frá og með 15. október 2013 kl. 14:42

Bjarnarey, loftmynd

Bjarnarey liggur skammt suður af Elliðaey og er næst henni í stærð, 0.32km². Eyjan er mjög hálend og þverhníptir klettahamrar umlykja eyjuna alla nema á litlu svæði norðaustan megin. Þar er uppgangur á eyjuna. Annar uppgangur er norðvestan á eynni, á Hvannhillu, og þykir mun erfiðari. Á miðri eyjunni er afar hár grasivaxinn fjallhnúkur og í miðjum hnúknum er dæld. Fjallhnúkurinn nefnist Bunki og er gjallgígur líkt og á Elliðaey, hæsti punktur þar er 161 m yfir sjávarmáli. Bjarnarey myndaðist í eldgosi um svipað leyti og Elliðaey eða fyrir 5-6 þúsund árum. Veiðikofi Bjarnareyinga er sunnan við Bunka og er sá eini á eyjunni. Graslendi þekur alla eyjuna og lundi hefur grafið sér holur mjög víða. Mikill og fjölbreyttur gróður er í eyjunni. Talsverðum fjölda sauðfjár er beitt í Bjarnarey og lundi er veiddur yfir sumartímann, ásamt eggjatöku að vorlagi.

Jón dynkur

Bjarnarey séð ofan af Heimakletti

Margir menn hafa fengið viðurnefni í Vestmannaeyjum í gegnum tíðina. Ein sagan segir frá því að einhverju sinni var Jón nokkur, mikill fjallamaður, uppi í Bjarnarey að síga niður eggjum í bát sem var við eyna. Mennirnir á bátnum kipptu ógætilega í bandið þannig að Jón féll niður úr eynni og í sjóinn u.þ.b. 14 faðma. Öllum brá auðvitað mikið við en um leið og Jón skaust upp úr kafinu sagði hann: „Heyrðuð þið ekki mikinn dynk, piltar?" Eftir þetta var hann alltaf kallaður Jón dynkur.

Úr örnefnaskrá Gísla Lárussonar

Bjarnarey í vetrarbúningi

Bjarnarey liggur suður af Ellirey ca ½ mílu frá Heimaey. Er hún að beit helmingi minni en Ellirey, er þar slægjuland, sem nálega 100 hestar af heyi fást af. Lundatekja á ári um 16.000 og svartfugl 3.-5.000 (og hefir hún mestan svartfugl af öllum eyjunum). Við útnorðursnef eyjarinnar er uppganga erfið, nefnd Hvannhilla, en norðausturnefið Brekaflá, dregið af grunni, sem er þar skammt út frá nefnt Breki ; en milli nefjanna er nefnt Hvannhillubringir. Á austurjaðri eyjanna nyrst er vik, nefnt Höfn ; er uppganga beggja vegna, grasbekkur og nefnt Hafnarbrekka að norðan, en efst í henni og upp af Brekaflá, Hafnarbrekkuhaus.

Fyrir botni Hafnarinnar er urð með einum drang, Hafnardrang ; en upp af er allstór hamar, Glóraveiðar. En þar norður af Réttarhaus, dregið af fjárrétt þar skammt frá. Syðri brekkan við Höfnina er nefnd Suður-Hafnarbrekka og efst í henni Ingimundarflái. Góður veiðistaður; nýtt nafn (1880). Þar fyrir sunnan er hátt standberg, sem myndar hvilft. Er nyrst á þessu svæði nefnt Skora. Landsuðursnefið er nefnt Eystra-Haganef, og er vestan í því hellir við sjó niður, Brynjólfshellir. En efst í nefinu er stór bekkur, Álkustallur. En upp af nefinu er Hagaskoruhaus og enn ofar Hagaskorulágar. Suðvesturnefið er nefnt Vestra-Haganef, en milli Haganefja eru Bringir nefndir, grasivaxnir stallar. Fyrir norðan Vestra-Haganef er Fálkató, dálítil hvilft í bergið með grasteygingum. Þar niður af í berginu eru Bergsteinsofanferðir og þar niður af Stórabæli, stærsti bekkur er svartfugl hefir verpt á hér.

Kringum 1860 var fyrst snarað þar, svo menn viti og höfðust þar 1800 svartfuglar – hér fyrir norðan eru Hrútaskorur, gildrög grasivaxin. Þá kemur Matarkrókur, sem liggur að Hvannhillu, er áður er nefnd (matur dreginn þar upp af fuglamönnum, þegar ekki verður lagt að Steðja). Uppi á háeyjunni er hóll, Bunki, með stórum eldgíg, er nefnist Bunkalág. Vestan í honum og neðan við hann er slægjuland, Slægjan.

Myndir



Heimildir