Bjarnareyjarfélagið

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bjarnareyjarfélagið er heiti á veiðifélagi þeirra sem veiða í Bjarnarey. Fyrsta húsið í Bjarnarey var smíðað 1928. Árið 1991 fauk það hús í aftakaveðri sem þá var á öllu Suðurlandi. Húsið fauk upp í heilu lagi.

Árið 1987 var smíðað nýtt hús. Árið 1992 var það hús stækkað.