„Ólafur Gunnarsson (Vík)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Ólafur Gunnarsson''' í Vík fæddist 21. nóvember 1899 í Vík í Mýrdal og drukknaði 16. desember 1924.<br> Foreldrar hans voru [[Gunnar Ólafsson (kaupmaður...) |
m (Verndaði „Ólafur Gunnarsson (Vík)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 18. nóvember 2016 kl. 16:43
Ólafur Gunnarsson í Vík fæddist 21. nóvember 1899 í Vík í Mýrdal og drukknaði 16. desember 1924.
Foreldrar hans voru Gunnar Ólafsson alþingismaður, kaupmaður, útgerðarmaður, settur sýslumaður í viðlögum, f. 18. febrúar 1864, d. 26. júní 1961, og Jóhanna Eyþórsdóttir í Vík húsfreyja f. 18. október 1870, d. 19. júlí 1944.
Börn Jóhönnu og Gunnars:
1. Ólafur Gunnarsson, f. 21. nóvember 1899 í Vík í Mýrdal, drukknaði 16. desember 1924.
2. Sigurður Ásgeir Gunnarsson kaupmaður, f. 18. febrúar 1901 í Vík í Mýrdal, d. 12. október 1941.
3. Nanna Gunnarsdóttir f. 15. september 1903 í Vík í Mýrdal, d. 18. febrúar 1979.
4. Guðlaug Gunnarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 15. maí 1905 í Vík í Mýrdal, d. 15. september 1974.
5. Eyþór Gunnarsson læknir, f. 24. febrúar 1908 í Vík í Mýrdal, d. 25. ágúst 1969.
6. Kristín Gunnarsdóttir, f. í apríl 1909 í Vík í Mýrdal, d. 25. júlí 1909 í Garðhúsum.
Ólafur var með foreldrum sínum í Vík í Mýrdal og fluttist með þeim til Eyja 1909.
Hann var með þeim í Garðhúsum í fyrsu og í Vík frá 1912, var með þeim 1920, þá bókari.
Ólafur drukknaði við Eiðið 16. desember 1924 á leið út í e.s. Gullfoss.
Ólafur var ókvæntur.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.