Guðlaug Gunnarsdóttir (Vík)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðlaug Gunnarsdóttir Þormar frá Vík, húsfreyja í Reykjavík fæddist 15. maí 1905 í Vík í Mýrdal og lést 15. september 1974.
Foreldrar hennar voru Gunnar Ólafsson alþingismaður, kaupmaður, útgerðarmaður, sýslumaður í viðlögum, f. 18. febrúar 1864, d. 26. júní 1961, og Jóhanna Eyþórsdóttir í Vík húsfreyja f. 18. október 1870, d. 19. júlí 1944.

Börn Gunnars og Jóhönnu:
1. Ólafur Gunnarsson, f. 21. nóvember 1899 í Vík í Mýrdal, drukknaði 16. desember 1924.
2. Sigurður Ásgeir Gunnarsson kaupmaður, f. 18. febrúar 1901 í Vík í Mýrdal, d. 12. október 1941.
3. Nanna Gunnarsdóttir f. 15. september 1903 í Vík í Mýrdal, d. 18. febrúar 1979.
4. Guðlaug Gunnarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 15. maí 1905 í Vík í Mýrdal, d. 15. september 1974.
5. Eyþór Gunnarsson læknir, f. 24. febrúar 1908 í Vík í Mýrdal, d. 25. ágúst 1969.
6. Kristín Gunnarsdóttir, f. í apríl 1909 í Vík í Mýrdal, d. 25. júlí 1909 í Garðhúsum.

Guðlaug var með foreldrum sínum í Vík í Mýrdal og fluttist með þeim til Eyja 1909.
Hún var með þeim í Garðhúsum í fyrstu og í Vík frá 1912, var með þeim 1920.
Hún giftist Andrési 1930 og bjó í Reykjavík.
Guðlaug lést 1974.

Maður Guðlaugar, (27. september 1930), var Andrés Guttormsson Þormar aðalgjaldkeri hjá Landsíma Íslands, f. 29. janúar 1895, d. 30. desember 1986. Foreldrar hans voru Guttormur Vigfússon alþingismaður í Geitagerði á Héraði, f. 8. ágúst 1850, d. 26. desember 1928, og kona hans Sigríður Guðbjörg Anna Sigmundsdóttir frá Ljótsstöðum í Skagafirði, húsfreyja, f. 9. október 1862, d. 16. júlí 1922.
Börn þeirra:
1. Gunnar Andrésson Þormar tannlæknir, f. 21. júlí 1932.
2. Birgir Ólafur Andrésson Þormar lögfræðingur, f. 15. maí 1939, d. 11. janúar 1996.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.